Æfingin skapar meistarann – eða hvað?

Allir þekkja orðatiltækið “æfingin skapar meistarann”. Eins og með flestar klisjur er eitthvað til í því en samt er það ekki allur sannleikurinn. Í þessu tilfelli er nauðsynlegt að útskýra hvað “æfing” er. Er til dæmis alltaf sniðugt að æfa bara meira? Alveg örugglega ekki. Í badminton – og sennilega í flestum íþróttum – er lítill munur á magninu sem bestu 2-300 spilarar heims eru … Halda áfram að lesa: Æfingin skapar meistarann – eða hvað?

Valdís Þóra endaði í 3. sæti í Ástralíu

Valdís Þóra keppir þessa dagana á Áströlsku mótaröðinni í golfi. Hún mun taka þátt í fjórum 1-2 daga pro am mótum sem geta gefið henni þátttöku inn í LPGA mót sem fara fram í Ástralíu í febrúar. Pro am mót eru þannig að 1-2 atvinnukylfingar og 1-2 áhugakylfingar spila saman í liði. Í mótunum í Ástralíu spila allir sínum bolta og er sér keppni fyrir … Halda áfram að lesa: Valdís Þóra endaði í 3. sæti í Ástralíu

Sveinbjörn Jun Iura keppti í Ísrael í dag

Sveinbjörn keppti á sterku móti í Tel Aviv, en þetta var fyrsta Ólympíu punkta mótið 2020. Hann tapaði glímunni en ekki mikið vantaði upp á. „Tap í dag en hörku glíma, vantaði svo lítið uppá að ég náði að skora úr köstunum og að ná 3 shidoinu! Svekkjandi en margt sem ég get byggt af þessari glímu! Áfram gakk.“ sagði Sveinbjörn. Halda áfram að lesa: Sveinbjörn Jun Iura keppti í Ísrael í dag

Æfingadagbók: Þuríður Erla #2

Sjötta og Seinasta vikan í Power Cycle Fyrra session:  Upphitun: Tekur oftast svona 60 mín.  Mobility: Ég byrja æfingarnar mínar alltaf á smá mobbi, þar sem ég foam rúlla mig og finn hvar ég er stífust, tek svo nokkrar teygjur, oftast glutes, psoas, hamstrings og brjóstvöðva.  Stöðugleikaæfingar: Svo geri ég stöðugleikaæfingar fyrir axlir, ég byrja alltaf á æfingum með böndum (CrossOver Symmetry) og svo fylgja … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Þuríður Erla #2

Upphitun fyrir keppni

Síðan ég var unglingur hefur upphitunin mín fyrir keppni alltaf verið mjög svipuð. Það gæti kannski verið vegna hjátrúar en ég kemst alltaf í betri fíling og finn svona að ég sé tilbúin væri líkamlega og andlega þegar ég geri alltaf sömu eða svipaða rútínu. Grunnurinn að upphituninni er mjög svipuð en hún breytist aðeins eftir því hvaða sund ég er að keppa í. Ef … Halda áfram að lesa: Upphitun fyrir keppni

Æfingadagbók: Valdís Þóra #2

Valdís sýnir okkur einn mánudag í janúarhjá sér. Morgunæfing Morgunæfingin þennan daginn var hlaupaæfing, en ég endaði á að hlaupa um 3,5 km. 500 m upphitun 4×600 m sprettir með 2-3 mín pásu á milli (ganga eða hvíla alveg) 500 niðurhlaup Slátturæfing Það skiptir miklu máli að gera góða upphitun og teygjur, verð að hugsa vel um líkamann og undirbúa hann fyrir æfinguna. Fleyghögg Byrja … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Valdís Þóra #2

Reykjavík International Games

Núna um helgina byrja Reykjavík International Games (RIG), en þetta er í þrettánda sinn sem þeir eru haldnir. Þetta er íþróttahátíð Reykjavíkur þar sem keppt er í 15-20 einstaklingsíþróttagreinum. Keppnin skiptis í tvær mótshelgar en einnig er ráðstefna hluti af dagskránni. „Reykjavíkurleikarnir eru haldnir til að auka samkeppnishæfni íslenskra íþróttamanna og draga úr ferðakostnaði þeirra með því að búa til einstakan alþjóðlegan viðburð hér í … Halda áfram að lesa: Reykjavík International Games

Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #2

Lyftinga- og hoppæfing Æfingablokkir Æfingarnar mínar eru skipulagðar í það sem við köllum æfingablokkir. Hver blokk er yfirleitt 3 vikur og samanstendur af tveimur þungum vikum og svo einni léttari þar sem æfingaálag er minna. Nú í byrjun árs var ég að byrja í nýrri blokk þar sem áhersla er á það sem við köllum “kontrast” styrk sem er blanda af styrk og sprengikrafti. Þetta … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #2

Endurheimtin og að fá sem mest út úr æfingunum

Síðustu 20 ár hef ég æft sund og á mínum sundferli hef ég lært hve mikilvæg endurheimt er. Ég finn að endurheimtin er ekki aðeins góð til að ég jafni mig sem fyrst eftir æfingu, heldur finn ég að ef ég legg mikla áherslu á góða endurheimt þá næ ég að synda hraðar, oftar og næ að reyna meira á mig á æfingunum. Mikilvægast fyrir … Halda áfram að lesa: Endurheimtin og að fá sem mest út úr æfingunum

Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura #2

Æfingar í Japan Allir Júdomenn sem vilja ná alvöru árangri og ná langt í íþróttinni sérstaklega á Íslandi verða að fara út fyrir landsteinana og æfa. Ég sem Júdómaður hef góða reynslu í því að æfa víðsvegar um heiminn og að mínu mati er Japan besti staðurinn til að æfa júdó og ar kemstu á æfingar sem eru “the next level”, og það mun breyta … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura #2

Sjónmyndaþjálfun – sjálfstraust og undirbúningur

Andlegur Undirbúningur Hvernig getum við undirbúið okkur undir eitthvað sem við höfum ekki upplifað áður og aukið sjálfstraust á sama tíma? Þegar ég keppi og næ mínum besta árangri, þá hefur það nær alltaf verið þegar hausinn á mér er í autopilot og ég þarf ekki að taka ákvarðanir, heldur bara framkvæma. Ég veit nákvæmlega hvað kemur næst og þarf ekki að vera hugsa fyrir … Halda áfram að lesa: Sjónmyndaþjálfun – sjálfstraust og undirbúningur

Æfingadagbók: Guðni Valur #2

Í síðustu æfingadagbók (sjá hér) þá talaði ég um að það skipti miklu máli í kringlukasti að vera sterkur heilt yfir líkamann og það er ekki rétt að þú notir aðeins hendurnar í kringlukasti. Eins og ég nefndi í seinustu æfingardagbókinni þá skiptir gríðarlegu miklu máli að vera sterkur heilt yfir og er það algeng ranghugsun að það þurfi bara að nota hendurnar. Krafturinn kemur … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðni Valur #2

Nám samhliða atvinnumennsku

Ég heyrði fyrst af því á nýliðakynningu Evróputúrsins að íþróttamenn sem einungis hafa stundað sína íþrótt og ekki menntað sig samhliða, eða áður en þeir fóru í atvinnumennsku, upplifi ákveðna tómleikatilfinningu og tilfinningu fyrir að vera týndur þegar ferlinum lyki. Ferlinum mun ljúka á einhverjum tímapunkti. Við vitum aldrei hvað gerist, hvaða meiðslum við gætum lent í eða hvort við veljum bara að nú sé … Halda áfram að lesa: Nám samhliða atvinnumennsku

Hlutverk næringar í sköpun meistarans

Líkaminn er kraftaverk og líkami íþróttamannsins er sannkallað meistaraverk því bygging og eiginleikar hans hafa að hluta með það að gera hvaða árangri viðkomandi getur náð, þó vissulega komi svo margt fleira inn í það. Það sem gleymist stundum í næringartengdri umræðu er einmitt hve einstakur hver líkami er sem aftur útskýrir hvers vegna svörun við ákveðnu mataræði getur verið ólík milli einstaklinga. Þar koma … Halda áfram að lesa: Hlutverk næringar í sköpun meistarans

Æfingadagbók: Guðlaug Edda #2

Hvíldardagur Hvíldardagar eru jafn mikilvægir og fullir æfingadagar hjá mér. Þess vegna langar mig að gefa ykkur innsýn inn í týpískan hvíldardag hjá mér. Þríþraut er mikil úthaldsíþrótt og það gerist mjög sjaldan að ég fái algjöran hvíldardag, en það þýðir að ég þurfi ekki að fara á neina æfingu allan daginn. Flesta hvíldardaga æfi ég 1-2x, en mjög rólega. Síðan nýti ég daginn í … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðlaug Edda #2

Anton á 20. besta tímann í heiminum

Anton Sveinn McKee keppti um helgina á Pro Swim Series í Knoxville. Í gær náði hann frábærum árangri í 100m bringusundi, sjá grein „Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville„. Anton keppti á laugardeginum í 200m bringusundi og varð þriðji inn í úrslitin á tímanum 2:15.61. Í úrslitasundinu synti hann á 2:11.34 og hafnaði í 2. sæti. Þetta er frábær byrjun á … Halda áfram að lesa: Anton á 20. besta tímann í heiminum

Tune your instrument

Ég er búin að bæta mig verulega síðustu ár í upphitun fyrir keppni og æfingar. Það er svo mikilvægt!!! Ef þú pælir í því, við verðum að koma líkamanum í tilbúið ástand til að halda ákveðnum stöðugleika.  Ef við værum hljóðfæraleikarar væri rökrétt að byrja á því að stilla hljóðfærið áður en við byrjum að spila. Annars sama hversu vel við hittum á tónana, þá … Halda áfram að lesa: Tune your instrument

Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #2

Á laugardögum eru yfirleitt erfiðustu æfingar vikunnar eða sýrubaðs æfingar eins og Anton kallaði það um daginn í æfingadagbók sinni. Æfingarnar okkar eru samt mjög mismunandi þótt við séum bæði að æfa sund þar sem ég æfi eingöngu fyrir 50m en Anton fyrir 100 og 200m.  Hvað eru keppnislíkar aðstæður? Keppnislíkar aðstæður er þegar æfingunni er líkt við keppni með einhverjum hætti. Við reynum að … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #2

Úr fimleikum, fótbolta og frjálsum í CrossFit og Ólympískar Lyftingar

Mér fannst við hæfi að skrifa pistil um hvernig ég kynntist ólympískum lyftingum og ferilinn minn þangað sem ég er komin í dag, í vonandi ekki of löngu máli….lofa samt engu.  Ég heiti Þuríður Erla Helgadóttir, hef alltaf verið kölluð Þurí og hef notað Thuri Helgadóttir eftir að margoft hafði verið reynt að bera fullt nafnið mitt fram á ensku á hinum ýmsu mótum, ekki … Halda áfram að lesa: Úr fimleikum, fótbolta og frjálsum í CrossFit og Ólympískar Lyftingar