Elísa Viðars – Næring Hlaupara – Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Elísa Viðarsdóttir næringarfræðingur kom í Klefann til að ræða næringu hlaupara þar sem nú nálgast Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem fer fram 23. ágúst. Elísa deilir dýrmætum ráðum um hvernig hlauparar geta bætt frammistöðu sína með réttri næringu og undirbúningi. Þá er farið yfir mikilvægi næringar fyrir hlaupara, hvernig á að undirbúa sig fyrir hlaup, orkuinntöku, kolvetnahleðslu og hvernig á að nýta gel og drykki á hlaupadögum, … Halda áfram að lesa: Elísa Viðars – Næring Hlaupara – Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun – Arnar Sölvi Íþróttanæringarfræðingur

KLEFINN x Arnar Sölvi Næringarfræðingur Nýjasti viðmælandinn í „Klefinn með Silju Úlfars“ er Arnar Sölvi Arnmundsson íþróttanæringarfræðingur hjá Nutreleat. Arnar leggur mikið upp úr því hvernig íþróttafólk getur hámarkað árangur sinn í íþróttum með betri næringu, það er ekki nóg að æfa bara, það þarf að horfa á þetta frá fleirum hliðum eins og næringu, svefn og andlegri heilsu meðal annars. Næring í íþróttum: Grunnatriðin … Halda áfram að lesa: Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun – Arnar Sölvi Íþróttanæringarfræðingur

Arnar Sölvi Arnmundsson – Íþróttanæringafræðingur

Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur.  Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira.  Margt kom fram í þættinum meðal annars:  Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og … Halda áfram að lesa: Arnar Sölvi Arnmundsson – Íþróttanæringafræðingur

Podcast: #2 Elísa Viðarsdóttir – Næringarfræðingur og knattspyrnukona

Elísa Viðarsdóttir hefur leikið knattspyrnu frá unga aldri og á yfir 50 landsleiki meðal annars á stórmótum. Elísa starfar sem næringarfræðingur hjá Heil Heilsumiðstöð.  Elísa ræðir um næringu íþróttafólks, hvernig er hægt að skipuleggja sig og skapa sér betri rútínur þegar kemur að næringu í kringum æfingar og keppnir. Elísa fer yfir það hvað íþróttafólk getur gert betur þegar kemur að næringu. Elísa gefur okkur … Halda áfram að lesa: Podcast: #2 Elísa Viðarsdóttir – Næringarfræðingur og knattspyrnukona

COVID-19 Faraldurinn: Ráð fyrir íþróttamenn, þjálfara, foreldra og íþróttasamfélagið

Á vef „Association for Applied Sport Psychology“ má nálgast grein þar sem farið er ítarlega yfir hvað við þurfum að passa upp á sem íþróttamenn, þjálfarar og foreldrara í íþróttasamfélaginu á tímum COVID-19. Farið er yfir almennt hvað flestir geta gert og bent á að við erum öll saman í þessu, andlegar sveiflur eru eðlilegar, einföldum líf okkar og setjum fókusinn á þær nauðsynjar sem … Halda áfram að lesa: COVID-19 Faraldurinn: Ráð fyrir íþróttamenn, þjálfara, foreldra og íþróttasamfélagið

Covid-19 kennir naktri konu að spinna

Covid-19 er óværa sem er að setja líf okkar úr skorðum á hátt sem við höfum ekki upplifað áður. Faraldurinn hefur valdið kvíða hjá mörgum í samfélaginu, fólk er að missa vinnuna, hann hefur tekið af okkur skemmtanir og íþróttakappleiki tímabundið og hann hefur knúið mörg okkar til að vinna, stunda nám og hreinlega lifa á annan hátt en við höfum vanið okkur á og … Halda áfram að lesa: Covid-19 kennir naktri konu að spinna

Uppskrift: Breiðlokur og Avókadó salat

Það er gott og göfugt markmið að elda og baka sem mest frá grunni heima. Þá má líka reikna með að fólk verði sérstaklega duglegt við það næstu misserin vegna þeirra aðstæðna sem eru uppi núna vegna COVID-19. Það er því einmitt tilvalið að sjá tækifærin í þessu öllu og prófa nýjar og spennandi uppskriftir í eldhúsinu. Að þessu sinni langar mig að deila með … Halda áfram að lesa: Uppskrift: Breiðlokur og Avókadó salat

Hvað er ofþjálfun og hvernig kemurðu í veg fyrir það?

Langflest höfum við heyrt talað um ofþjálfun í íþróttum, jafnvel lent í því eða þekkjum einhvern sem hefur verið eða er að glíma við ofþjálfun. En hvað er ofþjálfun? Hvers vegna lendum við í ofþjálfun og hvað er það sem gerist í líkamanum þegar við förum í ofþjálfun? Jafnvægi og ójafnvægi í líkamanum Áður en við förum að greina nákvæmlega hvað ofþjálfun er, þá er … Halda áfram að lesa: Hvað er ofþjálfun og hvernig kemurðu í veg fyrir það?

Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #4

Hvíldardagur Ég tek mér alltaf einn hvíldardag í viku til þess að leyfa líkamanum að jafna sig eftir æfingar vikunnar. Yfirleitt er þetta laugardagur. Á hvíldardeginum sit ég þó ekki bara á sófanum allan daginn því til þess að hjálpa líkamanum að gera við allt sem ég hef brotið niður yfir vikuna er nauðsynlegt að auka blóðflæði. Þetta geri ég með virkri hvíld. Fyrir þá … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #4

Þú getur borðað allt, bara ekki alltaf og allt í einu

Fjölbreytt mataræði, í hæfilegu magni er gott fyrir líkama og sál. Matvæli sem birtast í sinni upprunalegu mynd eins og grænmeti, ávextir, fiskur, kjöt, kornmeti, baunir og linsur eru frábær uppspretta góðra næringarefna. Ef við borðum fjölbreytta fæðu, þá tryggjum við að líkaminn fái öll þau næringarefni sem hann þarf til þess að stuðla að góðri heilsu og í kjölfarið getum við minnkað líkurnar á … Halda áfram að lesa: Þú getur borðað allt, bara ekki alltaf og allt í einu

Macros: Vigtar þú matinn þinn?

Já ég vigta matinn minn og ég skal segja þér af hverju. Þegar ég ákvað að hætta í sundi hafði ég áhyggjur eins og örugglega flest allir sem hætta í íþróttum að ég myndi fitna. Ég vissi ekki hvernig ég ætti að borða eins og venjuleg manneskja. Ég vildi læra það án þess að fara á einhvern kúr sem myndi duga í 1 mánuð.  Ég … Halda áfram að lesa: Macros: Vigtar þú matinn þinn?

Endurheimt: Hvað virkar og hvað ekki?

Á keppnistímabili er æfinga- og keppnisálag mjög mikið, æfingar nánast daglega og leikir/keppnir reglulega, þá er endurheimt (recovery) lykillinn að því að hámarka afköst og minnka líkur á álagstengdum meiðslum. Mikið er talað og ritað um mikilvægi endurheimtar og til er fjöldinn allur af tækjum, tólum og bætiefnum sem geta hjálpað þér við að ná endurheimt. Þegar við erum í stífum æfingum þá erum við … Halda áfram að lesa: Endurheimt: Hvað virkar og hvað ekki?

Snilldar næring eftir æfingu

Æfingar einstaklinga eru ólíkar og mis krefjandi. Til að ná árangri og bæta sig stöðugt þarf að huga vel að næringunni. Að fá góða næringu eftir æfingu er því gríðalega miklvægt. Prótein er eitt aðal byggingarefni líkamans og þurfum við þau til byggja upp og endurnýja vefi líkamans. Kolvetni eru mikilvæg því vöðvar líkamans kjósa kolvetni sem sinn aðalorkugjafa. Kolvetni eru til að fylla aftur … Halda áfram að lesa: Snilldar næring eftir æfingu

Spítalaferðin mikla

Botnlanginn kvartar Föstudaginn 14.desember 2018 vaknaði ég upp akkúrat klukkan fimm að morgni við gífurlegan sársauka í kviðnum og fannst eins og ég hafi verið stunginn með hníf. Ég reyndi að sofna aftur og tókst það klukkan 10 og náði að sofa til tvö. Þegar ég vaknaði þá var allur sársaukinn sem ég hafði fundið farinn fyrir utan að þegar það kom þrýstingur utanfrá á … Halda áfram að lesa: Spítalaferðin mikla

Endurheimtin og að fá sem mest út úr æfingunum

Síðustu 20 ár hef ég æft sund og á mínum sundferli hef ég lært hve mikilvæg endurheimt er. Ég finn að endurheimtin er ekki aðeins góð til að ég jafni mig sem fyrst eftir æfingu, heldur finn ég að ef ég legg mikla áherslu á góða endurheimt þá næ ég að synda hraðar, oftar og næ að reyna meira á mig á æfingunum. Mikilvægast fyrir … Halda áfram að lesa: Endurheimtin og að fá sem mest út úr æfingunum

Hlutverk næringar í sköpun meistarans

Líkaminn er kraftaverk og líkami íþróttamannsins er sannkallað meistaraverk því bygging og eiginleikar hans hafa að hluta með það að gera hvaða árangri viðkomandi getur náð, þó vissulega komi svo margt fleira inn í það. Það sem gleymist stundum í næringartengdri umræðu er einmitt hve einstakur hver líkami er sem aftur útskýrir hvers vegna svörun við ákveðnu mataræði getur verið ólík milli einstaklinga. Þar koma … Halda áfram að lesa: Hlutverk næringar í sköpun meistarans

Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Hvíldardagur – Sunnudagur Sunnudagurinn er eini dagur vikunnar sem ég æfi ekki, hvort sem það er að stinga mér ofan í sundlaugina eða taka á því í ræktinni. Þrátt fyrir það, þá er þessi dagur jafn mikilvægur og allir aðrir æfingadagar. Fyrir mér þá snúast sunnudagar um að hlaða batteríin og undirbúa líkamann fyrir átök vikunnar með því að einblína á endurheimt. Hvíld og árangur … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Var étin upp af malbiki

Slysið Í júní í fyrra lenti ég í slysi í keppni. Það var stelpa í hjólahópnum mínum sem datt af hjólinu og tvær aðrar duttu á hana. Ég var fyrir aftan þær og þurfti að nauðhemla til þess að hjóla ekki yfir þær sem voru nú þegar á jörðinni. Við það kastaðist ég af hjólinu, fór í hring í loftinu og lenti aftan á hnakkanum … Halda áfram að lesa: Var étin upp af malbiki

Tasty Toscana Telmu

Telma Matthíasdóttir er lífsglöð stelpukona með mikinn metnað! Henni finnst gott að borða góðan mat, en kýs að lifa lífinu í heilbrigðum líkama, full af orku og í andlegu jafnvægi. Telma hefur keppt í þríþraut í nokkur ár og 2015 kláraði hún heilan Iron Man. Næsta áskorun hjá henni er 50km í Hengil Ultra Run í júní, en hún hefur aldrei hlaupið svo langt og … Halda áfram að lesa: Tasty Toscana Telmu