Kraftlyftingar með Júlían – lærðu af þeim besta

Júlían J.K. Jóhannsson er einn sterkasti maður landsins. Hann hefur keppt fyrir Íslands hönd í Kraflyftingum og hefur ekki aðeins sett fjölmörg Íslandsmet, heldur einnig Evrópumet og þrisvar sinnum Heimsmet.

Hann á tvö Bronz verðlaun frá Heimsmeistaramóti og er nú með Kraftlyftingarskólann þar sem þú getur lært af og æft með honum.

Júlían fer yfir helstu tækni í Hnébeygju, Bekkpressu og Réttstöðulyftu, en sjálfur á hann 415 kg í hnébeygju, 332,5 kg í bekkpressu og 409 kg í réttstöðulyftu.

Gangi þér vel að lyfta