Ásdís endaði í þriðja sæti á sænska meistaramótinu

Ásdís keppti á sínu síðasta innanhússmóti í kúluvarpi, en 2020 er síðasta „official“ keppnisárið hennar. Ásdís keppti á sænska meistaramótinu og endaði í 3ja sæti, með sitt næst lengsta kast innanhús eða 16.14m. Keppnin var hörkuspennandi en Ásdís var í 2. sæti þangað til í síðustu umferðinni þegar Frida Åkerström kastaði 16.36m. Fanny Roos sigraði með því að varpa kúlunni 17.92m, en þess má geta … Halda áfram að lesa: Ásdís endaði í þriðja sæti á sænska meistaramótinu

Guðni Íslandsmeistari með stóra bætingu

Kúluvarpið á Íslandsmeistaramótinu í frjálsum fór fram í dag og mætti Guðni Valur þar til leiks í hörku formi og bætir sinn besta árangur enn eina ferðina þegar hann varpaði kúlunni 18.60m í seinustu umferð. Mótið byrjaði rólega hjá okkar manni og byrjaði hann á að gera sitt fyrsta kast ógilt, neglir síðan á 17.84m í annarri umferð og 17.78m í þeirri þriðju. Gerir ógilt … Halda áfram að lesa: Guðni Íslandsmeistari með stóra bætingu

Sveinbjörn Jun Iura komst í þriðju umferð

Sveinbjörn Jun Iura júdókappi keppti á Grand Slam Dusseldorf í dag. Mótið er gríðalega sterkt en Sveinbjörn komst í þriðju umferð í 81 kg. flokki. 63 voru skráðir til leiks í 81 kg. flokki og öll helstu löndin senda sína bestu menn til að næla sér í punkta fyrir Ólympíuleikana 2020 og er barráttan og sigurviljinn hjá hverjum gríðarlegur. Sveinbjörn sat hjá í fyrstu umferð … Halda áfram að lesa: Sveinbjörn Jun Iura komst í þriðju umferð

Ólafía í 2. sæti kvenna á Evolve mótaröðinni

Lokahringurinn á Hacienda del Alamo Open mótinu á Spáni fór fram í dag. Mótið er hluti af Evolve mótaröðinni. Þar keppa saman áhugamenn, atvinnumenn, konur og karlar. 12 íslenskir kylfingar frá Golfklúbbi Reykjavíkur eru búnir að vera við æfingar á Spáni og voru á meðal keppenda. Þar á meðal var Ólafía okkar hjá Klefanum. Íslendingarnir stóðu sig með sannkölluðu prýði. Andri Þór leiddi mótið lengi … Halda áfram að lesa: Ólafía í 2. sæti kvenna á Evolve mótaröðinni

Ásdís með bætingu í kúluvarpi, aðeins 1cm frá Íslandsmeti

Ásdís Hjálmsdóttir Annerud keppti á Spåret Grand Prix, sem er hluti af Folksam Grand Prix mótaröðinni í Svíþjóð . Ásdís bætti sig í kúluvarpi þegar hún kastaði 16.18m og er aðeins 1 cm frá Íslandsmetinu. Ásdís endaði í 5. sæti á þessu mjög sterka móti. Fanny Roos sigraði mótið með yfirburðum með kasti upp á 18.19cm en hún er meðal annars Evrópu meistari í kúluvarpi … Halda áfram að lesa: Ásdís með bætingu í kúluvarpi, aðeins 1cm frá Íslandsmeti

Guðni Valur RIG meistari með bætingu

Um helgina fór fram fjálsíþrótta mótið sem tilheyrir Reykjavíkurleikunum og var þar æsispennandi keppni í karlakúlunni. Guðni Valur kom með svakalega bætingu í kúluvarpi núna á Reykjavíkurleikunum og bætti sig um rúmann meter innannhúss og hálfum metra lengra en hans besta kast utanhúss. Keppnin var mjög spennandi og skiptust Guðni Valur og John Kelly um að leiða keppnina. Guðni Valur opnaði mótið með því að … Halda áfram að lesa: Guðni Valur RIG meistari með bætingu

Valdís Þóra endaði í 3. sæti í Ástralíu

Valdís Þóra keppir þessa dagana á Áströlsku mótaröðinni í golfi. Hún mun taka þátt í fjórum 1-2 daga pro am mótum sem geta gefið henni þátttöku inn í LPGA mót sem fara fram í Ástralíu í febrúar. Pro am mót eru þannig að 1-2 atvinnukylfingar og 1-2 áhugakylfingar spila saman í liði. Í mótunum í Ástralíu spila allir sínum bolta og er sér keppni fyrir … Halda áfram að lesa: Valdís Þóra endaði í 3. sæti í Ástralíu

Sveinbjörn Jun Iura keppti í Ísrael í dag

Sveinbjörn keppti á sterku móti í Tel Aviv, en þetta var fyrsta Ólympíu punkta mótið 2020. Hann tapaði glímunni en ekki mikið vantaði upp á. „Tap í dag en hörku glíma, vantaði svo lítið uppá að ég náði að skora úr köstunum og að ná 3 shidoinu! Svekkjandi en margt sem ég get byggt af þessari glímu! Áfram gakk.“ sagði Sveinbjörn. Halda áfram að lesa: Sveinbjörn Jun Iura keppti í Ísrael í dag

Anton á 20. besta tímann í heiminum

Anton Sveinn McKee keppti um helgina á Pro Swim Series í Knoxville. Í gær náði hann frábærum árangri í 100m bringusundi, sjá grein „Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville„. Anton keppti á laugardeginum í 200m bringusundi og varð þriðji inn í úrslitin á tímanum 2:15.61. Í úrslitasundinu synti hann á 2:11.34 og hafnaði í 2. sæti. Þetta er frábær byrjun á … Halda áfram að lesa: Anton á 20. besta tímann í heiminum

Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville

Anton Sveinn McKee keppti á sínu fyrsta móti á Ólympíuárinu, en Anton Sveinn er sá eini sem hefur nú þegar náð lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Tokyo sem hefjast í júlí.   Hann dvelur nú í Virginia í Bandaríkjunum þar sem hann býr og æfir stíft í góðum hóp afreksmanna þar.  Anton keppti á Pro Swim Series í Knoxville, Tennessee sem er sterkt sundmót í Bandaríkjunum. Hann … Halda áfram að lesa: Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville