Íslenska skíða- og snjóbretta landsliðið er að undirbúa sig fyrir Vetrarólympíuleikana sem fara fram 6.-22. febrúar 2026 í Cortina á Ítalíu. Átta einstaklingar eru í Ólympíuhóp ÍSÍ og þykjast líkleg til að fara á Ólympíuleikana.
Skíðalandsliðið tekur Ironman test sem er algengt í skíðaheiminum, þetta próf metur heildar þol og styrk íþróttafólksins sem þarf til að keppa á hæsta stigi í alpagreinum.
Norðmenn þróuðu þetta test árið 2002 fyrir karlalandsliðin sín í alpagreinum og síðan þá hefur prófið verið tekið upp af fjölmörgum.
Allt A- og B- landsliðsfólk í alpagreinum þurfa að fara í Ironman test tvisvar sinnum á ári. Lágmarks stig í Ironman testi eru 250 stig fyrir 16-18 ára, 350 sig fyrir 19-20 ára og + 500 fyrir 20 ára og eldri. Þess má geta að greinarnar eru aðeins öðruvísi fyrir yngri iðkendur.
Kristófer Þorgrímsson mætti og fylgdist með skíðalandsliðinu taka testið og tók þetta video fyrir okkur, getur skoðað heimasíðuna hans hér kthorgrims.com.
Æfingarnar eru:
- 3000 metra hlaup
- Hexagonal Obstacle – hopp æfing sem mælir snerpu
- 1 RM hnébeygja
- Submax hnébeygja – fjöldi endurtekninga með 75% af 1RM
- 1 RM Bekkpressa
- Chin-ups – fjöldi upphýfinga, það þarf að rétta alveg úr og telja upp í 3 milli endurtekninga
- „Brutal benk“ – æfing sem mælir kviðstyrk.
- 90 sekúndna kassahopp – mælir mjólkursýru úthald í neðri útlimum


