Bakka upphitun Antons

Til þess að líða sem best í vatninu þegar ég hita upp á mótum og á æfingum sem ég hef nægan tíma, þá tek ég alltaf góða bakkaupphitun (15-20 mín). Bakkaupphitun er eitthvað sem hefur verið partur af rútinunni minni síðan ég var lítill strákur, en eins og margt annað á sundferlinum þá hefur upphitunin breyst mikið og bjó ég nýlega til nýja útgáfu af … Halda áfram að lesa: Bakka upphitun Antons

Sjálfstýring á keppnisdegi

Veist þú nákvæmlega hvað þú ert að fara gera þegar það eru 73 mínútur í að þú ert að fara keppa? Og afhverju ætti það að skipta einhverju máli? Jú, ef þú vilt minnka áhyggjur og stress á keppnisdegi og auka sjálfstraust á sama tíma, þá er mikilvægt að hafa dagskrána á keppnisdegi neglda niður. Lengi vel á mínum ferli var ég oft að leyfa … Halda áfram að lesa: Sjálfstýring á keppnisdegi

Sjónmyndaþjálfun – sjálfstraust og undirbúningur

Andlegur Undirbúningur Hvernig getum við undirbúið okkur undir eitthvað sem við höfum ekki upplifað áður og aukið sjálfstraust á sama tíma? Þegar ég keppi og næ mínum besta árangri, þá hefur það nær alltaf verið þegar hausinn á mér er í autopilot og ég þarf ekki að taka ákvarðanir, heldur bara framkvæma. Ég veit nákvæmlega hvað kemur næst og þarf ekki að vera hugsa fyrir … Halda áfram að lesa: Sjónmyndaþjálfun – sjálfstraust og undirbúningur

Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Hvíldardagur – Sunnudagur Sunnudagurinn er eini dagur vikunnar sem ég æfi ekki, hvort sem það er að stinga mér ofan í sundlaugina eða taka á því í ræktinni. Þrátt fyrir það, þá er þessi dagur jafn mikilvægur og allir aðrir æfingadagar. Fyrir mér þá snúast sunnudagar um að hlaða batteríin og undirbúa líkamann fyrir átök vikunnar með því að einblína á endurheimt. Hvíld og árangur … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Æfingadagbók: Anton Sveinn

Sýrubað Laugardagur í lífi sundmanns er alltaf skemmtilegasti dagurinn. Þar sem sunnudagur er hvíldardagur, þá er laugardagsæfingin seinasta æfing vikunnar og sú erfiðasta. Oftar en ekki þá er markmið æfingarinnar að æfa loftfirrtan þröskuld líkamans, eða það líkamsálag þar sem hröð aukning verður á mjólkursýrumyndum og sýran fer að safnast upp í blóðinu. Þetta eru mikilvægar æfingar bæði til að hækka loftfirrta þröskuld líkamans, sem … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Anton Sveinn

Alltaf að læra – EM uppgjör

Þrátt fyrir að hafa æft sund í rúm 20 ár, þá er ég ennþá að læra að vera betri sundmaður. Með hjálp Hafrúnar Kristjánsdóttur, sem er íþróttasálfræðingurinn minn, hef ég lært ýmsar leiðir til að verða betri. Það nýjasta sem hún kenndi mér er að gera upp hverja keppni til að læra sem mest frá þeim og geta strax farið að einbeita sér að veikleikum … Halda áfram að lesa: Alltaf að læra – EM uppgjör