Alltaf að læra – EM uppgjör

Þrátt fyrir að hafa æft sund í rúm 20 ár, þá er ég ennþá að læra að vera betri sundmaður. Með hjálp Hafrúnar Kristjánsdóttur, sem er íþróttasálfræðingurinn minn, hef ég lært ýmsar leiðir til að verða betri. Það nýjasta sem hún kenndi mér er að gera upp hverja keppni til að læra sem mest frá þeim og geta strax farið að einbeita sér að veikleikum sem þarf að bæta. Uppgjörið er bara 6 spurningar og gæti ég ekki mælt meira með því að svara þeim eftir hverja keppni. Það hjálpar manni að tæma slæmar hugsanir og sjá jákvæðar hliðar, sama hvernig gekk.

Spurningarnar eru eftirfarandi:

·        Hvað gerðist?
·        Hvaða hugsanir og tilfinningar hafðir þú?
·        Hvað var jákvætt og hvað var neikvætt?
·        Hvað hefði þú getað gert öðrivísi?
·        Hvað gerðir þú vel og vilt halda áfram að gera?
·        Hver eru næstu skref sem þú getur tekið til að eflast enn frekar?

Uppgjörið getur verið eins einfalt eða flókið og þú vilt hafa það, en mikilvægast er að átta sig á hvað maður getur gert betur næst, og notað það sem hvatningu í næstu æfingar.

Hérna fyrir neðan getið þið séð mín svör við EM25 uppgjörinu frá desember 2019:

Hvað gerðist?

Ég átti besta mót sem ég hef átt á mínum sundferli. Bæting í næstu hverja einasta sundi, og komst alltaf hraðar en ég fór í undanrásum. Ég hef sjaldan verið jafn undirbúinn og yfirvegaður fyrir neitt mót á ævinni. Einhvernveginn var bara allt tilbúið og ég var með engar áhyggjur yfir neinu. Ég hafði engu að tapa og einblíndi á að hafa gaman og njóta mín að fá tækifæri til að sjá hvað í mér býr.

Hvaða hugsanir og tilfinningar hafðir þú?

Fyrir mótið kom ég inn með háleit markmið, í raun að verða með bestu bringusundsmönnum í heimi, sem er ennþá markmiðið mitt. Þrátt fyrir að hafa ekki náð þeim þá tók ég stökk í áttina að þeim. Ég er loksins búinn að ná stjórn á tilfinningum mínum, með mun meiri yfirvegun og sjálfsstjórn.

Við undirbúninginn á mótinu þá áttaði ég mig á því að ég hefði engu að tapa fyrir þetta mót. Venjulega hef ég miklað allt fyrir mér, en einhvern veginn hefur viðhorfið mitt til sundsins breyst. Ég er mun meira og stærra en sundið, það er bara partur af því sem ég er og þess vegna hef ég loksins getað minnkað pressuna sem maður setur á sig fyrir mótin.

Með þessari yfirvegun þá gat ég virkilega notið þess að vera á EM og fá að keppa, því það er það skemmtilegasta sem ég geri.

Þegar „illa“ gekk, þá gat ég frekar horft til þess sem var jákvætt og tekið eftir tækifærum til bætinga og ekki leyft tímunum eða árangrinum að ákveða hvernig mér átti að líða. Til dæmis, þegar ég bætti mig ekki í 100 bringunnni í semi-finals, og þegar ég náði ekki að komast á pall í 200 bringu. Bæði þessi sund hafa gefið mér eitthvað sem ég get bætt og útfært betur næst.

Hvað var jákvætt og hvað var neikvætt?

Jákvætt:

  • Sjálfstjórn
  • Bætingar
  • Áhersla á að hafa gaman

Neikvætt

  • Sum tækniatriði sem ég hef verið að æfa hefðu mátt fara betur
    • Olnbogar í kafsundi
    • Hraðastjórnum
    • Takafjöldi í enda sundferðar, hitti stundum ekki nógu vel á bakkann
  • Endurheimt á meðan keppni stendur
    • Lítlll svefn

Hvað hefðir þú getað gert öðrivísi?

  • Ég hefði getað stjórnað koffein neyslu betur til að ná betri endurheimt. 
  • Ég hefði getað verið betri í hausnum til að leyfa ekki hlutum sem ég stjórna ekki að hafa áhrif á mig

Hvað gerðir þú vel og vilt halda áfram að gera?

  • Einbeiting í keppendaherbergi
  • Rútinur á keppnisdag
  • Andlegur undirbúningur
  • Ekki leyfa slæmu sundi að slá mig út af laginu
  • Njóta þess að vera til og fá að keppa 
  • Horfa jákvætt á erfiðar aðstæður, lét lítinn svefn ekki slá mig út af laginu

Hver eru næstu skref sem þú getur tekið til að eflast enn frekar?

  • Vinna ennþá meira í andlegu þáttunum
  • Læra á svefn og koffein neyslu
  • Halda áfram að æfa vel, það veitir öryggi að maður sé tilbúinn að keppa
  • Enblína á endurheimt

Endilega prófaðu og taggaðu mig á Instagram
Anton Sveinn McKee
IG: antonmckee

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.