Lærdómur af töpuðum leik

Það er sárt að tapa. Það er glatað að tapa næsta leik af því maður lærði ekki af reynslunni í fyrri leik. Í vikunni keppti ég á mótinu Barcelona Spain Masters núna sem er hluti af HSBC World Tour mótaröðinni. Því miður spilaði ég vægast sagt ekki góðan leik. Ég tapaði 21-13 21-14 á móti lægra rankaðann Indverja í fyrsta leik og þar með lauk … Halda áfram að lesa: Lærdómur af töpuðum leik

Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #2

Á laugardögum eru yfirleitt erfiðustu æfingar vikunnar eða sýrubaðs æfingar eins og Anton kallaði það um daginn í æfingadagbók sinni. Æfingarnar okkar eru samt mjög mismunandi þótt við séum bæði að æfa sund þar sem ég æfi eingöngu fyrir 50m en Anton fyrir 100 og 200m.  Hvað eru keppnislíkar aðstæður? Keppnislíkar aðstæður er þegar æfingunni er líkt við keppni með einhverjum hætti. Við reynum að … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #2

Var étin upp af malbiki

Slysið Í júní í fyrra lenti ég í slysi í keppni. Það var stelpa í hjólahópnum mínum sem datt af hjólinu og tvær aðrar duttu á hana. Ég var fyrir aftan þær og þurfti að nauðhemla til þess að hjóla ekki yfir þær sem voru nú þegar á jörðinni. Við það kastaðist ég af hjólinu, fór í hring í loftinu og lenti aftan á hnakkanum … Halda áfram að lesa: Var étin upp af malbiki

Alltaf að læra – EM uppgjör

Þrátt fyrir að hafa æft sund í rúm 20 ár, þá er ég ennþá að læra að vera betri sundmaður. Með hjálp Hafrúnar Kristjánsdóttur, sem er íþróttasálfræðingurinn minn, hef ég lært ýmsar leiðir til að verða betri. Það nýjasta sem hún kenndi mér er að gera upp hverja keppni til að læra sem mest frá þeim og geta strax farið að einbeita sér að veikleikum … Halda áfram að lesa: Alltaf að læra – EM uppgjör