Brick æfingar

Svokallaðar brickæfingar eru mikilvægur hluti af undirbúningi hjá mér áður en keppnir hefjast. Venjulega þá æfi ég allar þrjár greinarnar í sitthvoru lagi yfir daginn; sund, hjól og hlaup. En í keppnum þá er nauðsynlegt að setja þær allar saman enda engin hvíld á milli. Til þess að æfa greinarnar saman þá geri ég brickæfingar, þar sem ég fer frá sundi yfir í hjól, eða … Halda áfram að lesa: Brick æfingar

When motivation fades …

Hvað gerir þú þegar hvati fyrir æfingum minnkar? Öll höfum við lent í því að hvati og áhugi til æfinga minnki. Það er mjög eðlilegt og hluti af því að stunda íþróttir reglulega. Ástæðurnar geta verið margskonar; þrálát meiðsli, andlegt álag, mikið æfingaálagi í langan tíma eða lélegur árangur svo eitthvað sé nefnt.  En hvað er til ráðs þegar maður lendir í því að hvati … Halda áfram að lesa: When motivation fades …

Æfingadagbók: Guðlaug Edda #5

Ég fæ reglulega æfingadaga sem ég kalla Guðlaugar-daga. Þessa æfingadaga æfi ég allt ein, en ekki með æfingahópnum mínum eins og venjulega. Ég elska þessa æfingadaga vegna þess að ég get sjálf 100% stjórnað því sem ég geri, hvenær ég æfi og í hvaða röð ég tek æfingarnar. Ég nýti þessa daga sem líkamlega og andlega endurheimt, og mér líður alltaf vel eftir þá. Ef … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðlaug Edda #5

Hvað er ofþjálfun og hvernig kemurðu í veg fyrir það?

Langflest höfum við heyrt talað um ofþjálfun í íþróttum, jafnvel lent í því eða þekkjum einhvern sem hefur verið eða er að glíma við ofþjálfun. En hvað er ofþjálfun? Hvers vegna lendum við í ofþjálfun og hvað er það sem gerist í líkamanum þegar við förum í ofþjálfun? Jafnvægi og ójafnvægi í líkamanum Áður en við förum að greina nákvæmlega hvað ofþjálfun er, þá er … Halda áfram að lesa: Hvað er ofþjálfun og hvernig kemurðu í veg fyrir það?

Æfingadagbók: Guðlaug Edda #4

Nú er ég búin að vera í æfingabúðum í rúmlega þrjár vikur og það er óhætt að segja að æfingamagnið sé búið að aukast töluvert. Við byggjum á æfingar viku eftir viku og erum með hvíldardaga inn á milli en aldrei heilar hvíldarvikur. Þannig byggi ég upp þreytu í líkamanum sem á endanum skilar sér í betra formi á keppnisdag.  Fimmtudagar eru alltaf erfiðir og … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðlaug Edda #4

Æfingadagbók: Guðlaug Edda #3

Stór dagur í æfingarbúðum Fram í byrjun mars þegar keppnistímabilið hjá mér byrjar af alvöru verð ég búsett í Suður Afríku í æfingarbúðum með þjálfaranum mínum og æfingarfélögum. Við erum enn að byggja upp góðan grunn ásamt því að bæta inn meira álagi á hverri æfingu. Eins og ég hef komið að áður þá er þríþraut mikil úthaldsíþrótt og þess vegna skiptir máli að byggja … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðlaug Edda #3

5 atriði til að huga að í undirbúningi fyrir keppni

Hvað hugsar þú dagana/klukkutímana/mínúturnar fyrir keppni? Persónulega verð ég spennt fyrir keppni dagana fyrir, en á keppnisdegi líður mér stundum eins og ég þurfi að æla úr stressi. Ég á það til að fara fram og til baka í hausnum með öll heimsins “hvað ef” senaríó og þarf stanslaust að minna mig á að vera í núinu. Á þessu ári hef ég mikið unnið í … Halda áfram að lesa: 5 atriði til að huga að í undirbúningi fyrir keppni

Æfingadagbók: Guðlaug Edda #2

Hvíldardagur Hvíldardagar eru jafn mikilvægir og fullir æfingadagar hjá mér. Þess vegna langar mig að gefa ykkur innsýn inn í týpískan hvíldardag hjá mér. Þríþraut er mikil úthaldsíþrótt og það gerist mjög sjaldan að ég fái algjöran hvíldardag, en það þýðir að ég þurfi ekki að fara á neina æfingu allan daginn. Flesta hvíldardaga æfi ég 1-2x, en mjög rólega. Síðan nýti ég daginn í … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðlaug Edda #2

Var étin upp af malbiki

Slysið Í júní í fyrra lenti ég í slysi í keppni. Það var stelpa í hjólahópnum mínum sem datt af hjólinu og tvær aðrar duttu á hana. Ég var fyrir aftan þær og þurfti að nauðhemla til þess að hjóla ekki yfir þær sem voru nú þegar á jörðinni. Við það kastaðist ég af hjólinu, fór í hring í loftinu og lenti aftan á hnakkanum … Halda áfram að lesa: Var étin upp af malbiki

Æfingadagbók : Guðlaug Edda

Guðlaug Edda gefur okkur innsýn í æfingadag hjá sér. Ég æfi 3 sinnum á dag næstum því alla daga ársins, enda að reyna að ná jafnvægi á þrjár íþróttagreinar i þríþrautinni. Hérna kemur dæmi um týpískan æfingadag hjá mér þegar ég er í miðju undirbúningstímabili: Sundæfing 08:00-09:15 Ég byrjaði daginn á sundæfingu. Ég synti 4500m og var fókusinn mest á að viðhalda aerobic formi. Það … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók : Guðlaug Edda