Þú getur borðað allt, bara ekki alltaf og allt í einu

Fjölbreytt mataræði, í hæfilegu magni er gott fyrir líkama og sál. Matvæli sem birtast í sinni upprunalegu mynd eins og grænmeti, ávextir, fiskur, kjöt, kornmeti, baunir og linsur eru frábær uppspretta góðra næringarefna. Ef við borðum fjölbreytta fæðu, þá tryggjum við að líkaminn fái öll þau næringarefni sem hann þarf til þess að stuðla að góðri heilsu og í kjölfarið getum við minnkað líkurnar á ýmsum sjúkdómum. 

Matur veitir okkur ekki einungis orku heldur sinnir mikilvægu hlutverki í félagslífinu og þess vegna er mikilvægt að eiga í góðu og heilnæmu sambandi við mat og engin ástæða til að útiloka einhverjar fæðutegundir úr mataræðinu nema ef um ofnæmi eða óþol er að ræða.

Fæðukúrar eins og ketó, föstur, hreinsanir geta virkað í stuttan tíma en er það mataræði sem við gætum hugsað okkur að halda út allt lífið? Er tímabundið þyngdartap þess virði að sneiða hjá ákveðnum fæðutegundum. Við slíka útilokun, boð eða bönn myndast samband við mat sem getur orðið mjög óheilbrigt. Maturinn fer að stjórna þér en ekki öfugt og það getur myndast einhverskonar þráhyggja sem getur skert lífsgæðin okkar mjög mikið. 

Að breyta um lífsstíl þarf ekki að felast í fæðukúrum eða öðrum eins boðum eða bönnum. Það hljómar kannski ekkert mjög spennandi að vera á “skynsama” kúrnum en treystið mér til lengri tíma þá virkar hann… oftast. Gæti ekki verið skynsamlegt að prufa að byrja að borða minna, reyna að borða meira fjölbreytt, borða reglulega, minnka gosið eða viðbætta sykurinn?

Reynum að tileinka okkur mataræði sem við getum hugsað okkur að halda út allt lífið. Mataræði þar sem að við borðum fjölbreytta og næringaríka fæðu 80-90% af tímanum. Ef við náum að tileinka okkur slíkt mataræði þá er svigrúm fyrir 10-20% fæði sem er ekki eins næringaríkt. Það er mjög frelsaldi tilfinning að ná jafnvægi sem hentar okkur í mataræðinu og þegar við komumst á þann stað þá gerist það oftar en ekki að við náum að halda okkur í þeirri þyngd sem við erum sátt við hverju sinni. 

Þegar að hjólið fer að snúast okkur í hag og við erum orðnir leikstjórar í eigin lífi þá verður allt svo miklu, miklu auðveldara.

Gangi ykkur vel!

Elísa Viðars
IG: @elisavidars