Hvernig gíra ég mig upp fyrir keppnir

Eins og í flest öllum íþróttum þá þarf maður oft að gíra sig upp fyrir keppni og eru margir með allskonar hefðir sem allar eru mis sniðugar og geta verið létt ruglaðar stundum. Allt frá því að þurfa alltaf að borða einhvern sérstakan mat yfir í að vera í happa flíkum eða með glingur um hálsin sem á að veita fólki lukku af því þeim … Halda áfram að lesa: Hvernig gíra ég mig upp fyrir keppnir

Æfingadagbók: Guðni Valur #4

Ég tók loksins almennilega mánudagsæfingu þar sem ég náði að kasta fulla atrennu í fyrsta skiptið síðan 5.janúar þegar að ég meiddist aftaní lærinu. Ég hef glímt við þau meiðsli núna í tvo mánuði, en hef þó getað kastað kúlu þokkalega vel engu að síður.. Ég byrjaði æfinguna á að skokka 3 hringi í Laugardalshöllinni sem er um 600m. Síðan tók ég hreyfiteygjur til að … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðni Valur #4

Svakalegasta kast keppni á HM

Í september 2019 tók ég þátt á heimsmeistaramótinu í frjálsum sem fram fór í Doha í Qatar.  Planið mitt var að fara út á miðvikudegi til að keppa á laugardegi. Venjulega er ferðalagið frekar stutt frá keppni og er eðlilegra að fara út í æfingarbúðir fyrir stórmót sem er svona langt í burtu en þar sem ég var búinn að vera meiddur allt sumarið og … Halda áfram að lesa: Svakalegasta kast keppni á HM

Æfingadagbók: Guðni Valur #3

Um helgina tók ég síðustu æfinguna fyrir Reykjavíkurleikana sem ég tek þátt í á Sunnudaginn 2.febrúar klukkan 16:30 í Laugardalshöllinni og verður hörku keppni og eru yfir 30 útlendingar komnir til landsins til að keppa í frjálsum. Ég byrjaði æfinguna á að skokka 2 hringi eða um 400m tek síðan góðar hreyfiteygjur til að hita upp framanvert lærið, aftanvert lærið, innanvert lærið og utanverð lærinn … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðni Valur #3

Spítalaferðin mikla

Botnlanginn kvartar Föstudaginn 14.desember 2018 vaknaði ég upp akkúrat klukkan fimm að morgni við gífurlegan sársauka í kviðnum og fannst eins og ég hafi verið stunginn með hníf. Ég reyndi að sofna aftur og tókst það klukkan 10 og náði að sofa til tvö. Þegar ég vaknaði þá var allur sársaukinn sem ég hafði fundið farinn fyrir utan að þegar það kom þrýstingur utanfrá á … Halda áfram að lesa: Spítalaferðin mikla

Æfingadagbók: Guðni Valur #2

Í síðustu æfingadagbók (sjá hér) þá talaði ég um að það skipti miklu máli í kringlukasti að vera sterkur heilt yfir líkamann og það er ekki rétt að þú notir aðeins hendurnar í kringlukasti. Eins og ég nefndi í seinustu æfingardagbókinni þá skiptir gríðarlegu miklu máli að vera sterkur heilt yfir og er það algeng ranghugsun að það þurfi bara að nota hendurnar. Krafturinn kemur … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðni Valur #2

Byrjaði að kasta kringlu fyrir tilviljun

Hvernig ég byrjaði í frjálsum er frekar skemmtileg saga. Hafði aðeins æft frjálsar sem lítill gutti en þegar ég var á mínu fyrsta ári í menntaskóla var mjög góður vinur minn að æfa stangarstökk, var í landsliðinu í fjálsum og var mjög oft erlendis að keppa. Við vorum mikið saman á þessum tíma og ræddum það oft að fara til útlanda saman sem var ekki … Halda áfram að lesa: Byrjaði að kasta kringlu fyrir tilviljun

Æfingadagbók: Guðni Valur

Guðni Valur kringlukastari hefur farið áður á Ólympíuleikana og stefnir ótrauður aftur. Hér er lyftingardagurinn sem hann kallar „Laugardags topp í bekk“. Hnébeygja Í kringlukasti skemmir ekki fyrir að vera stór og sterkur þótt að það tvennt skili þér ekki endilega árangri. Það þarf að vera með góða blöndu af styrk og sprengikraft ef maður ætlar að kasta áhaldinu langt. Þess vegna eru oft settar … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðni Valur