Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville

Anton Sveinn McKee keppti á sínu fyrsta móti á Ólympíuárinu, en Anton Sveinn er sá eini sem hefur nú þegar náð lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Tokyo sem hefjast í júlí.   Hann dvelur nú í Virginia í Bandaríkjunum þar sem hann býr og æfir stíft í góðum hóp afreksmanna þar.  Anton keppti á Pro Swim Series í Knoxville, Tennessee sem er sterkt sundmót í Bandaríkjunum. Hann … Halda áfram að lesa: Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville

Byrjaði að kasta kringlu fyrir tilviljun

Hvernig ég byrjaði í frjálsum er frekar skemmtileg saga. Hafði aðeins æft frjálsar sem lítill gutti en þegar ég var á mínu fyrsta ári í menntaskóla var mjög góður vinur minn að æfa stangarstökk, var í landsliðinu í fjálsum og var mjög oft erlendis að keppa. Við vorum mikið saman á þessum tíma og ræddum það oft að fara til útlanda saman sem var ekki … Halda áfram að lesa: Byrjaði að kasta kringlu fyrir tilviljun

Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Hvíldardagur – Sunnudagur Sunnudagurinn er eini dagur vikunnar sem ég æfi ekki, hvort sem það er að stinga mér ofan í sundlaugina eða taka á því í ræktinni. Þrátt fyrir það, þá er þessi dagur jafn mikilvægur og allir aðrir æfingadagar. Fyrir mér þá snúast sunnudagar um að hlaða batteríin og undirbúa líkamann fyrir átök vikunnar með því að einblína á endurheimt. Hvíld og árangur … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Podcast: Aðeins meira en bara GYM

Silja Úlfars settist niður með Birnu Maríu Másdóttur sem sér um podcastið „Aðeins meira en bara GYM“ og þær ræddu verkefnið Klefinn.is „Í þættinum ræða þær um hvernig staða íþróttafólks og peningastyrkja er á Íslandi, umræðurnar um áhrifavalda og íþróttamenn og hversu mikið samheldni afreksfólks í einstaklingsíþróttum getur eflt þau.“ Frétt af Vísir.is – þar má hlusta á spjallið þeirra (30 mínútur). Halda áfram að lesa: Podcast: Aðeins meira en bara GYM

Kúnstin að æfa fyrir spjótkast

Ég hef í þó nokkurn tíma deilt myndböndum af hinum og þessum æfingum sem ég hef verið að gera á samfélagsmiðlum. Þessi myndbönd hafa vakið forvitni margra og þá aðallega fyrir fjölbreytileika. Margoft hef ég verið spurð hvers vegna í ósköpunum ég sé að gera margt af því sem ég er að gera. Eðlilega gerir fólk ráð fyrir að ef þú æfir fyrir spjótkast þá … Halda áfram að lesa: Kúnstin að æfa fyrir spjótkast

Æfingadagbók: Eygló Ósk #2

Æfingadagur Tvær æfingar þennan daginn, en markmiðið var að gera æfingarnar eins tæknilega vel og ég gat. Það var svolítið af erfiðum settum á báðum æfingunum en mikilvægast var að gera allt mjög tæknilega rétt. Frekar erfiður dagur en mjög skemmtilegar æfingar báðar tvær.  Morgunstyrktaræfingin: Þjálfarinn minn setur æfinguna upp í ákveðnu forriti og þess vegna eru mörg nöfnin á æfingunum á ensku, ef þú … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Eygló Ósk #2

Hark júdómanns að ÓL

Klifur upp listann Vegferð Júdómannsins í ná þáttökuréttindum inn á Ólympíuleikana er tölurvert frábrugðið öðrum greinum. Íslensku júdómennirnir þurfa að ferðast um allan heim til að ná í vinningspunkta sem færa okkur upp heimslistann. Þau lönd sem enda með hæðstu punktana í hverjum þyngdarflokki fyrir sig fá þáttökurétt. Í júdó eru 14 þyngdaflokkar, 7 í karla og 7 í kvenna og fá 18 efstu í … Halda áfram að lesa: Hark júdómanns að ÓL

Æfingadagbók: Þuríður Erla

Þuríður Erla stefnir á sínu fyrstu Ólympíuleika, hún hefur keppt á heimsleikunum í CrossFit en núna er fókusinn á Ólympískar lyftingar. Fyrsta vika í Power cycle  Session #1 Power + Bodybuilding  Upphitun – Mobility Eyði alltaf a.m.k klukkutíma í upphitun. Ég byrja alltaf á smá rúlli og dúlli á foam-roll og lacrosse ball. Aðeins yfir allan líkamann og finn þá líka hvar ég er aum … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Þuríður Erla

Æfingadagbók: Valdís Þóra

Týpískur vetraræfingadagur á “off season” sem endaði 7. janúar. Morgunteygjur – byrja daginn á að liðka mig og undirbúa mig fyrir æfingar dagsins. 1 klst 20 mín rækt eftir plani frá einkaþjálfara Upphitun og teygjur Styrktaræfingar með fókus á að styrkja bakið í heild sinni sem og litlu vöðvana í kringum meiðslin mín. Styrkja axlir og rass. Auka sprengikraft. Brennsla í enda æfingar Teygjur 45 … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Valdís Þóra

Var étin upp af malbiki

Slysið Í júní í fyrra lenti ég í slysi í keppni. Það var stelpa í hjólahópnum mínum sem datt af hjólinu og tvær aðrar duttu á hana. Ég var fyrir aftan þær og þurfti að nauðhemla til þess að hjóla ekki yfir þær sem voru nú þegar á jörðinni. Við það kastaðist ég af hjólinu, fór í hring í loftinu og lenti aftan á hnakkanum … Halda áfram að lesa: Var étin upp af malbiki

Sundbolurinn á snagann

Þekkirðu einhvern sem hefur hætt í sinni íþrótt og byrjað aftur oftar en einu sinni … Ég hef hætt í sundi, ekki bara einu sinni heldur tvisvar sinnum og í bæði skiptin snerti ég varla sundlaug í 10 mánuði. Frá Arizona til Hafnafjarðar Arizone var heimili mitt í nokkur ár, en ég fór út á skólastyrk til Bandaríkjanna sem ég mæli með. Ég kláraði viðskiptafræði … Halda áfram að lesa: Sundbolurinn á snagann

Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura

Sem Júdómaður þarf maður að hafa allan pakkan sem íþróttamaður ef maður ætlar að standa í þeim bestu. Maður þarf að hafa styrk, úthald, liðleika og þrek og skiptir þetta allt máli þegar kemur af því að glíma. Eitt af því sem er mikilvægt í glímunni er að hafa sterkt grip. Klassískasta leiðin til að æfa gripstyrkt meðal júdómanna er kaðlaklifur og finnur maður varla … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura

Fimm ástæður fyrir því að íþróttafólk þarf sterkan haus

Allir vita að til að ná árangri í íþróttum þarf bæði líkamlega og tæknilega getu. Þetta er geta sem íþróttafólk er að vinna í að bæta og viðhalda á hverjum einasta degi til að hoppa hærra, geta hlaupið lengra, til að geta tekið á móti boltanum og sent hann frá sér betur, eða til að geta slegið golfboltann vel og synt sem hraðast. Íþróttafólk þarf … Halda áfram að lesa: Fimm ástæður fyrir því að íþróttafólk þarf sterkan haus

Æfingaálag fyrir og eftir meiðsl

Meiðsli og að koma til baka eftir meiðsli getur oft verið sá mesti lærdómur sem íþróttamaður getur dregið af á sínum ferli. Þá þarf íþróttamaðurinn að taka nokkur skref aftur og hænuskref áfram sem getur verið mjög erfitt og reynt á þolinmæðina, en á móti frábær og mikilvægur kennari til lengri tíma. Ég meiddist á bakinu vorið 2017 og hafa æfingarnar mínar breyst mikið í … Halda áfram að lesa: Æfingaálag fyrir og eftir meiðsl

Æfingadagbók: Ólafía Þórunn

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir golfari sýndi okkur æfingadagbókina sína og segir okkur hvernig hún notar hana. Ég nota app sem heitir CoachNow sem æfingadagbók. Ég skrifa þar á hverjum degi:  Æfingarnar sem ég geri Tölfræði Hvernig mér leið Pælingar til að ég geti síðan hætt að hugsa um þær yfir daginn Bækur sem ég les … Hvað sem mér dettur í hug 🙂  Hér má sjá … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ólafía Þórunn

Æfingadagbók: Guðni Valur

Guðni Valur kringlukastari hefur farið áður á Ólympíuleikana og stefnir ótrauður aftur. Hér er lyftingardagurinn sem hann kallar „Laugardags topp í bekk“. Hnébeygja Í kringlukasti skemmir ekki fyrir að vera stór og sterkur þótt að það tvennt skili þér ekki endilega árangri. Það þarf að vera með góða blöndu af styrk og sprengikraft ef maður ætlar að kasta áhaldinu langt. Þess vegna eru oft settar … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðni Valur

Tasty Toscana Telmu

Telma Matthíasdóttir er lífsglöð stelpukona með mikinn metnað! Henni finnst gott að borða góðan mat, en kýs að lifa lífinu í heilbrigðum líkama, full af orku og í andlegu jafnvægi. Telma hefur keppt í þríþraut í nokkur ár og 2015 kláraði hún heilan Iron Man. Næsta áskorun hjá henni er 50km í Hengil Ultra Run í júní, en hún hefur aldrei hlaupið svo langt og … Halda áfram að lesa: Tasty Toscana Telmu

Allt um D vítamínskort og mikilvægi D vítamíns

Hvað með D-vítamín? D vítamín er lífsnauðsynlegt vítamín sem hefur margþætt áhrif á líkama þinn. Ólíkt öðrum vítamínum vinnur D-vítamín líkt og hormón og allar frumur líkamans hafa viðtaka fyrir því. Líkaminn fær D-vítamín frá sólarljósi sem og úr ákveðnum matvælum, s.s. feitum fiski og sumum mjólkurvörum en þess ber þó að geta að erfitt er að fá D-vítamín þörf líkamans úr fæðunni einni saman. … Halda áfram að lesa: Allt um D vítamínskort og mikilvægi D vítamíns

Hugarfar er lykillinn

“You have power over your mind – not outside events. Realize this, and you will find strength.” – Marcus Aurelius (Rómverskur keisari), Meditations  Hættu að afsaka þig Maður heyrir oft fólk kvarta yfir því að það spilar ekki eins vel á æfingum og á mótum. Ég var einu sinni þannig, og er kannski ekki alveg laus við það ennþá. En eftir að ég ákvað að … Halda áfram að lesa: Hugarfar er lykillinn

Æfingadagbók: Ásdís Hjálms

Ásdís Hjálmsdóttir Annerud Spjótkastari stefnir á sína fjórðu Ólympíuleika opnaði æfingadagbókina sína fyrir okkur. Tækni- og kastæfing Æfingin sem ég ætla að deila með ykkur í dag er tækni- og kastæfing. Spjótkast er mikil tæknigrein og það eru margir hlutir að huga að. Þess vegna geri ég fullt af litlum tækniæfingum áður en ég byrja að kasta, sérstaklega á þessum árstíma þegar ég er að … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ásdís Hjálms