Bakka upphitun Antons

Til þess að líða sem best í vatninu þegar ég hita upp á mótum og á æfingum sem ég hef nægan tíma, þá tek ég alltaf góða bakkaupphitun (15-20 mín). Bakkaupphitun er eitthvað sem hefur verið partur af rútinunni minni síðan ég var lítill strákur, en eins og margt annað á sundferlinum þá hefur upphitunin breyst mikið og bjó ég nýlega til nýja útgáfu af … Halda áfram að lesa: Bakka upphitun Antons

Svakalegasta kast keppni á HM

Í september 2019 tók ég þátt á heimsmeistaramótinu í frjálsum sem fram fór í Doha í Qatar.  Planið mitt var að fara út á miðvikudegi til að keppa á laugardegi. Venjulega er ferðalagið frekar stutt frá keppni og er eðlilegra að fara út í æfingarbúðir fyrir stórmót sem er svona langt í burtu en þar sem ég var búinn að vera meiddur allt sumarið og … Halda áfram að lesa: Svakalegasta kast keppni á HM

Fjarþjálfunarsamband

Það er ekki sjálfgefið að vinna með þjálfara sem býr í öðrum landshluta eða jafnvel í öðru landi en maður sjálfur. Þetta getur orðið erfitt og þá sérstaklega þegar þú æfir mikla tæknigrein sem krefst þess að rýna í smæstu smáatriði. Ég ákvað þó að láta á það reyna í byrjun árs 2017 og átti í kjölfarið besta tímabilið á mínum ferli. Á þessum tíma … Halda áfram að lesa: Fjarþjálfunarsamband

Ásdís með bætingu í kúluvarpi, aðeins 1cm frá Íslandsmeti

Ásdís Hjálmsdóttir Annerud keppti á Spåret Grand Prix, sem er hluti af Folksam Grand Prix mótaröðinni í Svíþjóð . Ásdís bætti sig í kúluvarpi þegar hún kastaði 16.18m og er aðeins 1 cm frá Íslandsmetinu. Ásdís endaði í 5. sæti á þessu mjög sterka móti. Fanny Roos sigraði mótið með yfirburðum með kasti upp á 18.19cm en hún er meðal annars Evrópu meistari í kúluvarpi … Halda áfram að lesa: Ásdís með bætingu í kúluvarpi, aðeins 1cm frá Íslandsmeti

Hvað er ofþjálfun og hvernig kemurðu í veg fyrir það?

Langflest höfum við heyrt talað um ofþjálfun í íþróttum, jafnvel lent í því eða þekkjum einhvern sem hefur verið eða er að glíma við ofþjálfun. En hvað er ofþjálfun? Hvers vegna lendum við í ofþjálfun og hvað er það sem gerist í líkamanum þegar við förum í ofþjálfun? Jafnvægi og ójafnvægi í líkamanum Áður en við förum að greina nákvæmlega hvað ofþjálfun er, þá er … Halda áfram að lesa: Hvað er ofþjálfun og hvernig kemurðu í veg fyrir það?

Hlynur Andrésson í Podcastinu „Hlaupalíf Hlaðvarp“

Elín Edda Sigurðardóttir langhlaupari ársins 2019 og Vilhjálmur Þór Svansson hafa mikla ástríðu fyrir hlaupum og halda úti podcastinu „Hlaupalíf Hlaðvarp“. Virkilega áhugavert að heyra sögu þeirra sem eru í fremsta flokki og setja markið hátt og við hin getum eflaust lært mikið af. Þau settust niður með Hlyn Andréssyni afrekshlaupara á dögunum og fóru yfir feril hans á hlaupaskónum! HLUSTA HÉR https://podtail.com/podcast/hlaupalif-hla-varp/-18-hlynur-andresson-afrekshlaupari-og-margfaldur-/ Elín og … Halda áfram að lesa: Hlynur Andrésson í Podcastinu „Hlaupalíf Hlaðvarp“

Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #4

Hvíldardagur Ég tek mér alltaf einn hvíldardag í viku til þess að leyfa líkamanum að jafna sig eftir æfingar vikunnar. Yfirleitt er þetta laugardagur. Á hvíldardeginum sit ég þó ekki bara á sófanum allan daginn því til þess að hjálpa líkamanum að gera við allt sem ég hef brotið niður yfir vikuna er nauðsynlegt að auka blóðflæði. Þetta geri ég með virkri hvíld. Fyrir þá … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #4

Leiði og þreyta í íþróttum…

Hvernig tekst ég á við leiða og þreytu í minni íþrótt? Það eru líklega flestir íþróttamenn sem finna fyrir leiða og þreytu á einhverjum tímapunkti í sinni íþrótt. Það er ekki óeðlilegt, uppáhalds áhugamálið er allt í einu orðið að vinnu og hugarfarið gagnvart því þarf að breytast. Þetta er ekki bara uppá gamanið lengur, nú á að lifa af íþróttinni. Þitt lifibrauð er undir … Halda áfram að lesa: Leiði og þreyta í íþróttum…

Klefaliðið keppir

Íþróttamennirnir okkar eru að keppa mikið þessa dagana, hér fyrir neðan má sjá hvað er framundan um helgina. Kári Gunnars Keppti í Íran í vikunni og komst þar í fjórðungsúrslit sem er frábær árangir, það þýðir að hann færist upp á heimslistanum sem kemur út í næstu viku. Næst er það Frakkland þar sem Kári keppir í næstu viku á EM landsliða. Sveinbjörn Jun Iura … Halda áfram að lesa: Klefaliðið keppir

Endurtekning, endurtekning … IPPON

Það eru til ýmsar leiðir til að sigra glímu í Júdó. Þú getur unnið með mjaðmakasti, sópi, í gólfglímu (hengingu eða lás) en fullkomnasti sigurinn er það að ná að kasta andstæðinginn þinn beint flatt á bakið með kasti þá vinnur þú glímuna og leikurinn er búinn en það kallast „ippon“ sem er fullnaðarsigur.  Áður en Júdó varð að bardagaíþrótt fyrir nútíma manninn þá var … Halda áfram að lesa: Endurtekning, endurtekning … IPPON

Góðar æfingar fyrir bakveika

Það er margt sem þarf að hugsa út í til að halda bakinu góðu og sérstaklega fyrir mig eftir svona erfið og löng bakmeiðsl. Ég þarf að hugsa vel út í hvernig líkamsstaðan mín er þegar ég stend, passa að sitja ekki of mikið og svo þarf ég að gera æfingar á hverjum degi sem liðkar og styrkir bakið á mér. Hér koma nokkrar æfingar … Halda áfram að lesa: Góðar æfingar fyrir bakveika

Íþróttafræðideild HR leggur Klefanum lið!

Klefinn og Íþróttafræðideild HR í samstarf Stafsfólk Íþróttafræðideild HR ætlar að leggja Klefanum lið með því að gerast gestapennar á síðunni. Dr. Hafrún Kristjánsdóttir deildarforseti íþróttafræðideildar HR er nú þegar gestapenni en fram að Ólympíuleikum munu kollegar hennar koma um borð og skrifa pistla er snúa að íþróttum. Starfsmenn íþróttafræðideilar HR búa yfir mikilli reynslu og þekkingu því fögnum við aðkomu þeirra að Klefanum og … Halda áfram að lesa: Íþróttafræðideild HR leggur Klefanum lið!

Karen Axels þríþrautar meistari í „The Snorri Björns Podcast Show“

Snorri Björns er með frábæra podcast þætti þar sem hann tekur viðtöl við marga afreksmenn sem er gaman að kynnast með þessum hætti. Í fyrra þá settist Karen Axels sem á íslandsmetið í þríþraut niður með Snorra og þau fóru víðan völl, en hún hefur upplifað ýmislegt í gegnum íþróttirnar. Mælum hiklaust með að þið hlustið á þennan þátt. Það er hægt að hlusta á … Halda áfram að lesa: Karen Axels þríþrautar meistari í „The Snorri Björns Podcast Show“

Macros: Vigtar þú matinn þinn?

Já ég vigta matinn minn og ég skal segja þér af hverju. Þegar ég ákvað að hætta í sundi hafði ég áhyggjur eins og örugglega flest allir sem hætta í íþróttum að ég myndi fitna. Ég vissi ekki hvernig ég ætti að borða eins og venjuleg manneskja. Ég vildi læra það án þess að fara á einhvern kúr sem myndi duga í 1 mánuð.  Ég … Halda áfram að lesa: Macros: Vigtar þú matinn þinn?

Ásdís Hjálms RIG meistari í kúluvarpi

Ásdís Hjálmsdóttir Annerud keppti í kúluvarpi á RIG leikunum í gær 2. febrúar. Hannah Molyneaux frá Bretlandi endaði í öðru sæti með 13.05m. Ásdís sýndi að hún er í frábæru formi á þessu Ólympíuári en hún kastaði 15.57 metra og sigraði kúluvarpið með góðu forskoti. Kúluvarp er innanhús grein Ásdísar en hún er sigursælasti spjótkastari okkar Íslendinga og stefnir ótrauð á fjórðu Ólympíuleikana 2020. „Ég … Halda áfram að lesa: Ásdís Hjálms RIG meistari í kúluvarpi

Sjálfstýring á keppnisdegi

Veist þú nákvæmlega hvað þú ert að fara gera þegar það eru 73 mínútur í að þú ert að fara keppa? Og afhverju ætti það að skipta einhverju máli? Jú, ef þú vilt minnka áhyggjur og stress á keppnisdegi og auka sjálfstraust á sama tíma, þá er mikilvægt að hafa dagskrána á keppnisdegi neglda niður. Lengi vel á mínum ferli var ég oft að leyfa … Halda áfram að lesa: Sjálfstýring á keppnisdegi

Vetrardvalinn

Homo sapiens golfdeus. Hvernig lifir hinn íslenski golfari af veturinn? Leggst hann eins og björninn í vetrardvala? Þessu ásamt mörgu öðru verður svarað í eftirfarandi pistli. Spennið sætisólarnar!… Til eru tvær tegundir af golfurum: hinn almenni kylfingur og atvinnukylfingur (Ef til vill eru til fleiri flokkar en ég er ekki víðlesin í þeim fræðum). Fyrir hinn almenna kylfing lítur árið t.d. svona út:  Byrjun árs: … Halda áfram að lesa: Vetrardvalinn

Endurheimt

Recovery  Æfingin skapar  meistarann!  Við megum samt ekki gleyma því að það er í hvíldinni á milli æfinga sem að hlutirnir gerast.  Þegar við æfum rífum við niður vöðvana en með góðri hvíld á milli æfinga, með góðum svefni og næringu byggjum við upp það sem við brutum niður á æfingunni og meira en það, við verðum betri en við vorum í gær.  Cool down   … Halda áfram að lesa: Endurheimt

Anton Sveinn í „The Snorri Björns Podcast Show“

Snorri Björns er með frábæra podcast þætti þar sem hann tekur viðtöl við marga af okkar helstu afreksmönnum. Í september í fyrra þá settist Anton Sveinn McKee niður með honum og þær fóru yfir málin. Skemmtilegt að hlusta á þá spjalla um sundheiminn og öðru því tengt. Það er einnig hægt að hlusta á podcastið HÉR og á Podcast appinu Taggið endilega Snorra og Anton … Halda áfram að lesa: Anton Sveinn í „The Snorri Björns Podcast Show“

Þorir þú að lifa betra lífi?

Við höfum öll okkar vana og rútínur sem við höfum skapað okkur í gegnum lífið. Þeir eru mismargir og missterkir en við þekkjum öll þægindin sem fylgja því að gera eins og venjulega. Hugtakið að vera vanafastur kemur einmitt þaðan, við erum vanaföst vegna þess að breytingum fylgir óvissa og þær eru óþægilegar. Þá sitjum við í makindum okkar mitt í miðjunni á hinum víðfræga … Halda áfram að lesa: Þorir þú að lifa betra lífi?