Snorri Björns er með frábæra podcast þætti þar sem hann tekur viðtöl við marga afreksmenn sem er gaman að kynnast með þessum hætti.
Í fyrra þá settist Karen Axels sem á íslandsmetið í þríþraut niður með Snorra og þau fóru víðan völl, en hún hefur upplifað ýmislegt í gegnum íþróttirnar. Mælum hiklaust með að þið hlustið á þennan þátt.
Það er hægt að hlusta á þáttinn HÉR og einnig á Podcast appinu.
Snorri segir þetta um Podcast þáttinn:
Karen Axelsdóttir ákvað á einu djamminu að snúa blaðinu við og byrja að hreyfa sig með því að lofa sér í ólympíska þríþraut. Margar slíkar staðhæfingar hafa komið af vörum fólks eftir nokkra drykki á slíkum kvöldum en í staðinn fyrir að vakna með samviskubit yfir orðum sínum fór hún og keypti byrjendapakka þríþrautamannsins.
Ólympísk þríþraut samanstendur af 1,5km sundi, 40km hjóli og 10km hlaupi. Önnur og töluvert vinsælli útfærsla af þríþraut gengur undir nafninu IronMan. Hún er ekki fyrir hvern sem er enda synda keppendur 3,8km í opnu vatni, hjóla 180km og eyðileggja sig svo endanlega með því að hlaupa maraþon: 42,2 kílómetra.
Ekki nóg með að vinna Ólympísku þríþrautina, nokkrum árum seinna kom Karen í mark í IronMan Austria á 9 klukkustundum og 24 mínútum, nýju Íslandsmeti… karla og kvenna. Þess má geta að Karen var 31 árs tveggja barna móðir þegar hún hóf æfingar.
Sagan af íþróttaferli hennar er ótrúlegur og hausinn sem þarf í svona íþrótt finnst ekki víða. Það kom því á óvart að heyra söguna af viðburðum sem Karen þurfti að takast á við seinna á ferlinum sem komust ekki nálægt erfiðleikastigi járnkarlsins að hennar sögn.
Taggið endilega Snorra þegar þið hlustið á!
@snorribjorns