Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #3

Hraðaæfing Í síðustu æfingadagbók útskýrði ég hvernig æfingarnar mínar eru skipulagðar í þriggja vikna blokkir. Ég er ennþá í blokk með áherslu á “kontrast” styrk en í þetta skiptið ætla ég að deila með ykkur æfingu sem ég geri einu sinni í viku til að vinna í hraða. Eins og venjulega þá hef ég myndband í lok greinarinnar með flestum æfingunum til þess að útskýra … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #3

Besti samningur í heimi!

Sem þjálfari tala ég við mikið af fólki og fæ sendar fyrirspurnir um hvernig er best að koma sér í form, verða betri íþróttamaður, hlaupa hraðar, lyfta meira, verða heilbrigðari o.s.frv. Svörin eru mörg og mismunandi en hins vegar veit ég eitt einfalt svar við spurningunni um hvað það er sem mun alltaf standa í vegi fyrir því að þú náir markmiðum þínum.  Afsakanir Það … Halda áfram að lesa: Besti samningur í heimi!

Æfingadagbók: Eygló Ósk #3

Planið fyrir þennan æfingadag var aðeins öðruvísi til að byrja með en ég þurfti að breyta til á sundæfingunni með þjálfaranum vegna þess að ég var farin að finna fyrir leiðinlegum verkjum í líkamanum vegna þreytu. En mikilvægast fyrir mig þegar kemur að þjálfuninni minni eru góð samskipti við þjálfarana mína, þá Unnar Helgason og Jacky Pellerin. Það skiptir mig mestu máli að það sé … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Eygló Ósk #3

Æfingadagbók: Guðlaug Edda #3

Stór dagur í æfingarbúðum Fram í byrjun mars þegar keppnistímabilið hjá mér byrjar af alvöru verð ég búsett í Suður Afríku í æfingarbúðum með þjálfaranum mínum og æfingarfélögum. Við erum enn að byggja upp góðan grunn ásamt því að bæta inn meira álagi á hverri æfingu. Eins og ég hef komið að áður þá er þríþraut mikil úthaldsíþrótt og þess vegna skiptir máli að byggja … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðlaug Edda #3

Æfingadagbók: Kári #2

Í dag voru tvær badmintonæfingar og ein æfing í ræktinni. 5,5 tími í allt. Morgunæfing – badminton (2,5 tími) Á morgunæfingunni var gerð æfing einn á móti einum og tveir á móti einum. Sóknarhöggin frá baklínunni voru í fókus. Ég er að vinna í að hafa mikinn fjölbreytileika í sókninni – sérstaklega með þau högg sem eru brött og fær andstæðinginn til að þurfa stíga … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Kári #2

Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #3

Ég ætla að fá að segja ykkur frá svona týpískum þriðjudegi hjá mér!Á þriðjudögum þá æfi ég 3x yfir daginn: tvær sundæfingar og ein lyftingaræfing. Ég byrja skipulagið yfirleitt kvöldið áður. Ég er að vinna sem kennari í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði og þarf því að undirbúa nesti sem ég reyni að gera alltaf kvöldinu áður. Ég mun segja ykkur frá mínu mataræði seinna þar sem … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #3

Æfingadagbók: Ólafía Þórunn #2

Practice with purpose Þegar ég æfi vil ég breyta mikið til, ekki gera sama hlutinn klukkutímum saman. Ef heilinn þarf að hafa meira fyrir því að hugsa og framkvæma hreyfingarnar þá haldast þær betur í kerfinu. Það er talað um þetta í The Talent Code – Daniel Coyle, uppáhalds bókinni minni, deep practice og að þjálfa “motor skills”. Ég hef líka tekið eftir þessu hjá … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ólafía Þórunn #2

Æfingin skapar meistarann – eða hvað?

Allir þekkja orðatiltækið “æfingin skapar meistarann”. Eins og með flestar klisjur er eitthvað til í því en samt er það ekki allur sannleikurinn. Í þessu tilfelli er nauðsynlegt að útskýra hvað “æfing” er. Er til dæmis alltaf sniðugt að æfa bara meira? Alveg örugglega ekki. Í badminton – og sennilega í flestum íþróttum – er lítill munur á magninu sem bestu 2-300 spilarar heims eru … Halda áfram að lesa: Æfingin skapar meistarann – eða hvað?

Æfingadagbók: Þuríður Erla #2

Sjötta og Seinasta vikan í Power Cycle Fyrra session:  Upphitun: Tekur oftast svona 60 mín.  Mobility: Ég byrja æfingarnar mínar alltaf á smá mobbi, þar sem ég foam rúlla mig og finn hvar ég er stífust, tek svo nokkrar teygjur, oftast glutes, psoas, hamstrings og brjóstvöðva.  Stöðugleikaæfingar: Svo geri ég stöðugleikaæfingar fyrir axlir, ég byrja alltaf á æfingum með böndum (CrossOver Symmetry) og svo fylgja … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Þuríður Erla #2

Upphitun fyrir keppni

Síðan ég var unglingur hefur upphitunin mín fyrir keppni alltaf verið mjög svipuð. Það gæti kannski verið vegna hjátrúar en ég kemst alltaf í betri fíling og finn svona að ég sé tilbúin væri líkamlega og andlega þegar ég geri alltaf sömu eða svipaða rútínu. Grunnurinn að upphituninni er mjög svipuð en hún breytist aðeins eftir því hvaða sund ég er að keppa í. Ef … Halda áfram að lesa: Upphitun fyrir keppni

Æfingadagbók: Valdís Þóra #2

Valdís sýnir okkur einn mánudag í janúarhjá sér. Morgunæfing Morgunæfingin þennan daginn var hlaupaæfing, en ég endaði á að hlaupa um 3,5 km. 500 m upphitun 4×600 m sprettir með 2-3 mín pásu á milli (ganga eða hvíla alveg) 500 niðurhlaup Slátturæfing Það skiptir miklu máli að gera góða upphitun og teygjur, verð að hugsa vel um líkamann og undirbúa hann fyrir æfinguna. Fleyghögg Byrja … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Valdís Þóra #2

Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #2

Lyftinga- og hoppæfing Æfingablokkir Æfingarnar mínar eru skipulagðar í það sem við köllum æfingablokkir. Hver blokk er yfirleitt 3 vikur og samanstendur af tveimur þungum vikum og svo einni léttari þar sem æfingaálag er minna. Nú í byrjun árs var ég að byrja í nýrri blokk þar sem áhersla er á það sem við köllum “kontrast” styrk sem er blanda af styrk og sprengikrafti. Þetta … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ásdís Hjálms #2

Endurheimtin og að fá sem mest út úr æfingunum

Síðustu 20 ár hef ég æft sund og á mínum sundferli hef ég lært hve mikilvæg endurheimt er. Ég finn að endurheimtin er ekki aðeins góð til að ég jafni mig sem fyrst eftir æfingu, heldur finn ég að ef ég legg mikla áherslu á góða endurheimt þá næ ég að synda hraðar, oftar og næ að reyna meira á mig á æfingunum. Mikilvægast fyrir … Halda áfram að lesa: Endurheimtin og að fá sem mest út úr æfingunum

Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura #2

Æfingar í Japan Allir Júdomenn sem vilja ná alvöru árangri og ná langt í íþróttinni sérstaklega á Íslandi verða að fara út fyrir landsteinana og æfa. Ég sem Júdómaður hef góða reynslu í því að æfa víðsvegar um heiminn og að mínu mati er Japan besti staðurinn til að æfa júdó og ar kemstu á æfingar sem eru “the next level”, og það mun breyta … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura #2

Tune your instrument

Ég er búin að bæta mig verulega síðustu ár í upphitun fyrir keppni og æfingar. Það er svo mikilvægt!!! Ef þú pælir í því, við verðum að koma líkamanum í tilbúið ástand til að halda ákveðnum stöðugleika.  Ef við værum hljóðfæraleikarar væri rökrétt að byrja á því að stilla hljóðfærið áður en við byrjum að spila. Annars sama hversu vel við hittum á tónana, þá … Halda áfram að lesa: Tune your instrument

Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #2

Á laugardögum eru yfirleitt erfiðustu æfingar vikunnar eða sýrubaðs æfingar eins og Anton kallaði það um daginn í æfingadagbók sinni. Æfingarnar okkar eru samt mjög mismunandi þótt við séum bæði að æfa sund þar sem ég æfi eingöngu fyrir 50m en Anton fyrir 100 og 200m.  Hvað eru keppnislíkar aðstæður? Keppnislíkar aðstæður er þegar æfingunni er líkt við keppni með einhverjum hætti. Við reynum að … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ingibjörg Kristín #2

Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Hvíldardagur – Sunnudagur Sunnudagurinn er eini dagur vikunnar sem ég æfi ekki, hvort sem það er að stinga mér ofan í sundlaugina eða taka á því í ræktinni. Þrátt fyrir það, þá er þessi dagur jafn mikilvægur og allir aðrir æfingadagar. Fyrir mér þá snúast sunnudagar um að hlaða batteríin og undirbúa líkamann fyrir átök vikunnar með því að einblína á endurheimt. Hvíld og árangur … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Kúnstin að æfa fyrir spjótkast

Ég hef í þó nokkurn tíma deilt myndböndum af hinum og þessum æfingum sem ég hef verið að gera á samfélagsmiðlum. Þessi myndbönd hafa vakið forvitni margra og þá aðallega fyrir fjölbreytileika. Margoft hef ég verið spurð hvers vegna í ósköpunum ég sé að gera margt af því sem ég er að gera. Eðlilega gerir fólk ráð fyrir að ef þú æfir fyrir spjótkast þá … Halda áfram að lesa: Kúnstin að æfa fyrir spjótkast

Æfingadagbók: Eygló Ósk #2

Æfingadagur Tvær æfingar þennan daginn, en markmiðið var að gera æfingarnar eins tæknilega vel og ég gat. Það var svolítið af erfiðum settum á báðum æfingunum en mikilvægast var að gera allt mjög tæknilega rétt. Frekar erfiður dagur en mjög skemmtilegar æfingar báðar tvær.  Morgunstyrktaræfingin: Þjálfarinn minn setur æfinguna upp í ákveðnu forriti og þess vegna eru mörg nöfnin á æfingunum á ensku, ef þú … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Eygló Ósk #2

Æfingadagbók: Þuríður Erla

Þuríður Erla stefnir á sínu fyrstu Ólympíuleika, hún hefur keppt á heimsleikunum í CrossFit en núna er fókusinn á Ólympískar lyftingar. Fyrsta vika í Power cycle  Session #1 Power + Bodybuilding  Upphitun – Mobility Eyði alltaf a.m.k klukkutíma í upphitun. Ég byrja alltaf á smá rúlli og dúlli á foam-roll og lacrosse ball. Aðeins yfir allan líkamann og finn þá líka hvar ég er aum … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Þuríður Erla