Æfingadagbók: Valdís Þóra

Týpískur vetraræfingadagur á “off season” sem endaði 7. janúar. Morgunteygjur – byrja daginn á að liðka mig og undirbúa mig fyrir æfingar dagsins. 1 klst 20 mín rækt eftir plani frá einkaþjálfara Upphitun og teygjur Styrktaræfingar með fókus á að styrkja bakið í heild sinni sem og litlu vöðvana í kringum meiðslin mín. Styrkja axlir og rass. Auka sprengikraft. Brennsla í enda æfingar Teygjur 45 … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Valdís Þóra

Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura

Sem Júdómaður þarf maður að hafa allan pakkan sem íþróttamaður ef maður ætlar að standa í þeim bestu. Maður þarf að hafa styrk, úthald, liðleika og þrek og skiptir þetta allt máli þegar kemur af því að glíma. Eitt af því sem er mikilvægt í glímunni er að hafa sterkt grip. Klassískasta leiðin til að æfa gripstyrkt meðal júdómanna er kaðlaklifur og finnur maður varla … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Sveinbjörn Jun Iura

Æfingaálag fyrir og eftir meiðsl

Meiðsli og að koma til baka eftir meiðsli getur oft verið sá mesti lærdómur sem íþróttamaður getur dregið af á sínum ferli. Þá þarf íþróttamaðurinn að taka nokkur skref aftur og hænuskref áfram sem getur verið mjög erfitt og reynt á þolinmæðina, en á móti frábær og mikilvægur kennari til lengri tíma. Ég meiddist á bakinu vorið 2017 og hafa æfingarnar mínar breyst mikið í … Halda áfram að lesa: Æfingaálag fyrir og eftir meiðsl

Æfingadagbók: Ólafía Þórunn

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir golfari sýndi okkur æfingadagbókina sína og segir okkur hvernig hún notar hana. Ég nota app sem heitir CoachNow sem æfingadagbók. Ég skrifa þar á hverjum degi:  Æfingarnar sem ég geri Tölfræði Hvernig mér leið Pælingar til að ég geti síðan hætt að hugsa um þær yfir daginn Bækur sem ég les … Hvað sem mér dettur í hug 🙂  Hér má sjá … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ólafía Þórunn

Æfingadagbók: Guðni Valur

Guðni Valur kringlukastari hefur farið áður á Ólympíuleikana og stefnir ótrauður aftur. Hér er lyftingardagurinn sem hann kallar „Laugardags topp í bekk“. Hnébeygja Í kringlukasti skemmir ekki fyrir að vera stór og sterkur þótt að það tvennt skili þér ekki endilega árangri. Það þarf að vera með góða blöndu af styrk og sprengikraft ef maður ætlar að kasta áhaldinu langt. Þess vegna eru oft settar … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Guðni Valur

Æfingadagbók: Ásdís Hjálms

Ásdís Hjálmsdóttir Annerud Spjótkastari stefnir á sína fjórðu Ólympíuleika opnaði æfingadagbókina sína fyrir okkur. Tækni- og kastæfing Æfingin sem ég ætla að deila með ykkur í dag er tækni- og kastæfing. Spjótkast er mikil tæknigrein og það eru margir hlutir að huga að. Þess vegna geri ég fullt af litlum tækniæfingum áður en ég byrja að kasta, sérstaklega á þessum árstíma þegar ég er að … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Ásdís Hjálms

Algengustu meiðsli í golfi, ástæður þeirra og hvernig megi forðast þau

Vinstri þumall og hryggur Flestir atvinnukylfingar hafa á einhverjum tímapunkti á ferlinum lent í meiðlsum enda samanstendur golfsveiflan af miklum snúningi og miklum sprengikraft án þess að hreyfa sig úr stað. Það gefur því auga leið að hreyfingar sem þessar valda miklu álagi á líkamann enda ekki mjög náttúrulegar. Ég sjálf hef lent í meiðslum, sum þeirra hafa verið minniháttar en önnur munu hafa áhrif … Halda áfram að lesa: Algengustu meiðsli í golfi, ástæður þeirra og hvernig megi forðast þau

Æfingadagbók: Anton Sveinn

Sýrubað Laugardagur í lífi sundmanns er alltaf skemmtilegasti dagurinn. Þar sem sunnudagur er hvíldardagur, þá er laugardagsæfingin seinasta æfing vikunnar og sú erfiðasta. Oftar en ekki þá er markmið æfingarinnar að æfa loftfirrtan þröskuld líkamans, eða það líkamsálag þar sem hröð aukning verður á mjólkursýrumyndum og sýran fer að safnast upp í blóðinu. Þetta eru mikilvægar æfingar bæði til að hækka loftfirrta þröskuld líkamans, sem … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Anton Sveinn

Hvernig get ég borðað til að auka orkuna við æfingar eða keppni?

Algeng spurning á meðal íþróttamanna er hvað get ég borðað til þess að auka orkuna við æfingar eða keppni? Flestir eru að reikna með því að ég sé með töfraefnið við hendina í einhverskonar fæðubótarefni sem tryggir þeim næga orku inn í æfingar eða keppni. Því miður er lausnin ekki svo einföld. Það er ekkert fæðubótarefni eins öflugt og hreinn matur. Í gegnum árin hefur … Halda áfram að lesa: Hvernig get ég borðað til að auka orkuna við æfingar eða keppni?

Hugleiðingar fyrir íþróttafólk

Stundum getur verið nauðsynlegt að sleppa aukaæfingu og einblína á svefn og næringu til þess að stuðla að góðri endurheimt í miklu álagi. Ef þú ætlar að viðhalda og jafnvel bæta sprengikraft á keppnistímabilinu, þá þarftu að þjálfa þannig og skipuleggja sprengikraftsæfingar skynsamlega inn í allt hitt æfingaálagið. Það getur verið kúnst. Sprengikraftsæfingar á keppnistímabili þurfa ekki að vera langar né í miklu magni. Gæði … Halda áfram að lesa: Hugleiðingar fyrir íþróttafólk

Æfingadagbók : Ingibjörg Kristín

Æfingadagur hjá Ingibjörgu Kristínu Ég lyfti og syndi á föstudögum svo ég þarf að passa að hafa nægan tíma á milli æfinga þannig að ég nái að jafna mig. Sundæfingarnar eru alltaf frá klukkan 18:00-20:00 svo ég reyni að nýta hádegishléðið mitt til þess að fara að lyfta. Ég þarf því að vera mjög skipulögð þar sem ég fer  að heiman klukkan 7:50 um morguninn … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók : Ingibjörg Kristín

Eitt skref afturábak, tvö áfram!

Tækniatriði og tips fyrir snörun  Þegar ég byrjaði í CrossFit prófaði ég snörun og clean & jerk (jafnhöttun á íslensku, ég er ekki vön að nota það) í fyrsta sinn af einhverju viti.  Ég man eftir því að hafa verið að æfa mig fyrir mitt fyrsta mót 2010 og vera orðin alveg smá pirruð á að vita í rauninni ekkert hvað ég var að gera. … Halda áfram að lesa: Eitt skref afturábak, tvö áfram!

Alltaf að læra – EM uppgjör

Þrátt fyrir að hafa æft sund í rúm 20 ár, þá er ég ennþá að læra að vera betri sundmaður. Með hjálp Hafrúnar Kristjánsdóttur, sem er íþróttasálfræðingurinn minn, hef ég lært ýmsar leiðir til að verða betri. Það nýjasta sem hún kenndi mér er að gera upp hverja keppni til að læra sem mest frá þeim og geta strax farið að einbeita sér að veikleikum … Halda áfram að lesa: Alltaf að læra – EM uppgjör

Æfingadagbók: Kári Gunnarsson

Kári Gunnarsson er að stefna á sína fyrstu Ólympíuleika, hann hefur verið okkar best badmintonspilari síðustu ár. Ég æfi á akademíu sem heitir Center of Excellence í Holbæk í Danmörku sem er akademía fyrir alþóðlega badmintonspilara á vegum Badminton Europe samtökin. Það búa allir á staðnum – allir hafa sitt eigið stúdíóherbergi og allar aðstæður eru á sama stað.  Á mánudaginn byrjar fyrsta “venjulega” æfingavikan … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Kári Gunnarsson

Betra úthald, hraði og styrkur í hlaupum !!!

Aukin þekking, aukinn hraði Flestir hlauparar hafa það sameiginlegt að vilja bæta sinn hraða í hlaupunum og þar kemur interval þjálfun sterk inn. Með interval þjálfun eigum við auðveldara með að biggja upp hraða, styrk og úthald í okkar æfingum og verða hlaupin og æfingarnar einnig mun skemmtilegari þar sem við erum ef alltaf með eitthvað markmið yfir hverja æfingu sem kemur svo til með … Halda áfram að lesa: Betra úthald, hraði og styrkur í hlaupum !!!

Æfingadagbók : Guðlaug Edda

Guðlaug Edda gefur okkur innsýn í æfingadag hjá sér. Ég æfi 3 sinnum á dag næstum því alla daga ársins, enda að reyna að ná jafnvægi á þrjár íþróttagreinar i þríþrautinni. Hérna kemur dæmi um týpískan æfingadag hjá mér þegar ég er í miðju undirbúningstímabili: Sundæfing 08:00-09:15 Ég byrjaði daginn á sundæfingu. Ég synti 4500m og var fókusinn mest á að viðhalda aerobic formi. Það … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók : Guðlaug Edda

Æfingadagbók: Eygló Ósk

Eygló Ósk stefnir núna á sína þriðju Ólympíuleika og leyfir okkur að kíkja í æfingadagbókina sína. Hér er einn dagur! Morgun styrktaræfing Bakupphitunaræfingar Upphitun :3 mín róður3 mín assault bikeKetilbjölluæfingar Sprengikraftur:6 umferðir : Teygjuhopp með báðar fætur (eitt stutt + eitt langt)4 umferðir : Teygjuhopp hægri/vinstri til skiptis (eitt stutt + eitt langt)Aðalsett:3 umferðir, 1 mín til að klára15 cal assault bike + 30m með … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Eygló Ósk