Uppskrift: Breiðlokur og Avókadó salat

Það er gott og göfugt markmið að elda og baka sem mest frá grunni heima. Þá má líka reikna með að fólk verði sérstaklega duglegt við það næstu misserin vegna þeirra aðstæðna sem eru uppi núna vegna COVID-19. Það er því einmitt tilvalið að sjá tækifærin í þessu öllu og prófa nýjar og spennandi uppskriftir í eldhúsinu. Að þessu sinni langar mig að deila með … Halda áfram að lesa: Uppskrift: Breiðlokur og Avókadó salat

Það mikilvægasta sem við getum kennt börnunum okkar

Það er líklega fátt sem hefur eins mikil áhrif á árangur okkar og hamingju og hugarfarið sem við búum yfir. Hugarfar okkar hefur áhrif á það hvernig við tökumst á við mótlæti, hvernig við bregðumst við þeim mistökum sem við gerum, hvaða verkefni við ákveðum að takast á við  í lífinu og hvernig við tökumst á við þau verkefni. Carol Dweck,  prófessor í sálfræði, er … Halda áfram að lesa: Það mikilvægasta sem við getum kennt börnunum okkar

Æfing #4: Klukkutíma æfing á 7 mínútum

Hversu oft hefuru hugsað eða heyrt einhvern segja að hann þoli ekki eða nenni ekki að gera „cardio“ æfingar. Persónulega finnst mér fátt leiðinlegra og meiri tímaeyðsla en að hanga á hlaupabretti tímananum saman.  Nýlega rakst ég podcast þátt hjá Tim Ferris þar sem hann var að ræða við Dr. Martin Gibala um rannsókn hans á HIIT þjálfun (High intensity interval training). Í þættinum var … Halda áfram að lesa: Æfing #4: Klukkutíma æfing á 7 mínútum

Sérhæfð sprettþjálfun íþróttafólks

Sprettir þurfa að vera í öllum æfingakerfum. Ávinningur þeirra er rosalega mikill, hvort sem þú ert í íþróttamaður í fremstu röð eða stundar bara þína líkamsrækt til þess að bæta heilsu og vellíðan. Þessi sprettþjálfun þarf samt að vera sérhæfð. Þegar ég tala um sérhæfða sprettþjálfun, þá er ég að tala um 100% ákefð með fyrirfram ákveðnum vegalengdum og hvíldum. Ég er ekki að tala … Halda áfram að lesa: Sérhæfð sprettþjálfun íþróttafólks

Æfing #3: Interval hlaup

Lára Hafliðadóttir er einn af þjálfurunum í „Þjálfarahorninu“ okkar. Lára er einn af þjálfurunum í „The absolute training“ en einnig þjálfar hún CBC hjólatíma, og er að vinna að rannsókn fyrir KSÍ. Interval hlaup – ekki síður æfing fyrir hausinn! Fyrir mér er algjört lykilatriði að hafa gaman af þeirri íþrótt eða hreyfingu sem maður stundar. Það þýðir þó ekki að maður finni alltaf fyrir … Halda áfram að lesa: Æfing #3: Interval hlaup

Hugar þú að svefni í æfinga- og keppnisferlinu?

Það eru komin þrjú ár síðan ég fór virkilega að hugsa um svefninn hjá mér bæði í daglegu lífi sem og tengt æfingunum. Ég man alltaf eftir því að hafa keypt mér bók eftir Nick Littlehales sem hét bara því einfalda nafni „Sleep“, eftir ráðleggingar frá þjálfaranum mínum á þeim tíma, Nick Saunders. Það væri vægt til orða tekið að segja að þessi bók hafi … Halda áfram að lesa: Hugar þú að svefni í æfinga- og keppnisferlinu?

Taktu stjórn á þínum eigin árangri

Íþróttamenn eru í sífelldri naflaskoðum á sjálfum sér og spyrja sig reglulega þeirra spurninga, hvernig get ég orðið betri? Ef til væri einhver einföld uppskrift, væru líklegast allir jafn góðir. Þeir sem hafa náð virkilega langt hafa lagt mikið á sig til þess að komast á þann stað og þeir sem stefna þangað eru eflaust á þeirri vegferð nú þegar. Íþróttamaður sem ætlar sér að … Halda áfram að lesa: Taktu stjórn á þínum eigin árangri

Æfing #2 Sprengikraftsþjálfun

Hver hefur ekki mætt í ræktina með ekkert plan og gert bara eitthvað? Við hjá Klefinn.is viljum hvetja alla til að stunda hreyfingu og æfa fjölbreytt. Við höfum fengið til liðs við okkur frábæra þjálfara sem ætla að setja inn æfingar reglulega sem gera má í ræktinni. Við hvetjum þig til að prófa og ekki gleyma að tagga okkur @Klefinn.is og þjálfarana. Vilhjálmur Steinarsson er … Halda áfram að lesa: Æfing #2 Sprengikraftsþjálfun

Hverjir verða framúrskarandi?

Í janúar kom út bók í Noregi með þema hverjir verða framúrskarandi í ritstjórn undirritaðs. Meðal efnis í bókinni eru greinar eftir Ericsson, einn fremsta fræðimann heims á sviði sérfræðiþekkingar, Henrik Carlsen, sem skrifar um son sinn, skákmeistarann Magnús Carlsen, Viðar Halldórsson og Þórólfur Þórlindsson sem skrifa um íslenska íþróttaævintýrið og viðtal við Liv Grete Skjelbreid, margfaldan heimsmeistara í skíðaskotfimi. Ég á grein í bókinni … Halda áfram að lesa: Hverjir verða framúrskarandi?

Vertu klár í fjallahlaup sumarsins

Margir hafa það sem sameiginlega markmið að geta hlaupið langar vegalengdir og keppt í krefjandi fjallahlaupum jafnvel víðsvegar um heiminn. En hvað þarf til þegar kemur að því að hlaupa langar og krefjandi vegalengdir í margar klukkustundir í senn ? Þar sem ég er að fara í mitt stærsta fjallahlaup til þessa 6. mars (128 km TransGranCanaria með 7.500m hækkun) þá langar mig að deila … Halda áfram að lesa: Vertu klár í fjallahlaup sumarsins

Æfing sem talin er góð til að fyrirbyggja nárameiðsli

Nárameiðsli eru algeng í íþróttum og oft á tíðum erfið viðureignar. Náraverkir eru algengir í íþróttum sem fela í sér að sparka, íþróttir með miklum hraðaaukningum, og þar sem íþróttamaður þarf skyndilega að hægja snöggt á sér, sem og endalausum stefnubreytingum. Algengustu náravandamálin eru tognanir á náravöðvum, álagseinkenni á beinvef á mjaðmar- og nárasvæði ásamt kviðslitum. Talið er að 4-19% af öllum meiðslum í fótbolta … Halda áfram að lesa: Æfing sem talin er góð til að fyrirbyggja nárameiðsli

Lykillinn að því að ná markmiðum sínum

Hefur þig dreymt um að ná árangri á ákveðnu sviði? Ef svo er, trúir þú því að þessi draumur geti orðið að veruleika? Hvað getur þú gert til þess að auka líkurnar? Það er hægt að læra mikið af þeim sem hafa skarað fram úr á sínu sviði, eins og t.d. íþróttamönnum sem hafa náð langt. Eitt af því sem þeir eiga sameiginlegt er að áður en þeir náðu árangri settu þeir sér … Halda áfram að lesa: Lykillinn að því að ná markmiðum sínum

Þú getur borðað allt, bara ekki alltaf og allt í einu

Fjölbreytt mataræði, í hæfilegu magni er gott fyrir líkama og sál. Matvæli sem birtast í sinni upprunalegu mynd eins og grænmeti, ávextir, fiskur, kjöt, kornmeti, baunir og linsur eru frábær uppspretta góðra næringarefna. Ef við borðum fjölbreytta fæðu, þá tryggjum við að líkaminn fái öll þau næringarefni sem hann þarf til þess að stuðla að góðri heilsu og í kjölfarið getum við minnkað líkurnar á … Halda áfram að lesa: Þú getur borðað allt, bara ekki alltaf og allt í einu

Hvar varst þú þegar þú náðir 10.000 klst. af æfingum?

Ég persónulega man það ekki, enda gerðist ekkert sérstakt, það urðu engin sérstök vatnaskil í mínum ferli við þennan áfanga. Manst þú það? Það leikur enginn vafi á því að íþróttafólk í fremstu röð hefur æft alveg geysilega mikið og undanfarna áratugi hefur verið mikil áhersla á að allir geti náð á toppinn, – bara ef maður leggur á sig þetta æfingamagn 10.000 klst. (sem … Halda áfram að lesa: Hvar varst þú þegar þú náðir 10.000 klst. af æfingum?

Styrktu góða liðsmanninn í þér!!!

Þó svo að liðsheild lýsi eiginleikum liðs, þá byggist þessi eiginleiki upp á framlagi hvers einstaklings í liðinu. Liðsheild er byggð af liðsmönnunum og engum öðrum. Sérstaklega eru það þeir liðsmenn sem búa yfir færninni að vera góðir liðsmenn sem styrkja liðsheild liða sinna. Í mjög stuttu máli má segja að það sem helst einkenni góða liðsmenn sé að þeir láta liðsfélögum sínum líða vel … Halda áfram að lesa: Styrktu góða liðsmanninn í þér!!!

Endurheimt: Hvað virkar og hvað ekki?

Á keppnistímabili er æfinga- og keppnisálag mjög mikið, æfingar nánast daglega og leikir/keppnir reglulega, þá er endurheimt (recovery) lykillinn að því að hámarka afköst og minnka líkur á álagstengdum meiðslum. Mikið er talað og ritað um mikilvægi endurheimtar og til er fjöldinn allur af tækjum, tólum og bætiefnum sem geta hjálpað þér við að ná endurheimt. Þegar við erum í stífum æfingum þá erum við … Halda áfram að lesa: Endurheimt: Hvað virkar og hvað ekki?

Ofálag og Hvíld

Ofálag Ofálag er nokkuð sem heyrist oft í tengslum við íþróttafólk og er nokkuð sem þarf að passa vel að gerist ekki.  En hvernig ber að varast ofálag? Í raun er ofálag það álag sem íþróttafólk er ekki undirbúið fyrir. Svo til að draga úr líkum á ofálagi þarf að greina hvernig og hve mikið álag íþróttafólkið þarf að þola.  Þá er ekki nóg að … Halda áfram að lesa: Ofálag og Hvíld

Hugur og hjarta sem ekkert fær stöðvað

Ég er viss um að þú, ég og allir þeir einstaklingar sem nú stefna á þátttöku á næstu Ólympíuleikum fyrir Íslands hönd, eigum öll eitt sameiginlegt. Við viljum öll að markmið okkar og draumar verði að veruleika. En hvað þarf til að svo megi verða? Margir trúa því að framúrskarandi árangur í íþróttum velti að mestu á genalottóinu eða félagslegum aðstæðum. En þrátt fyrir að … Halda áfram að lesa: Hugur og hjarta sem ekkert fær stöðvað

Besti samningur í heimi!

Sem þjálfari tala ég við mikið af fólki og fæ sendar fyrirspurnir um hvernig er best að koma sér í form, verða betri íþróttamaður, hlaupa hraðar, lyfta meira, verða heilbrigðari o.s.frv. Svörin eru mörg og mismunandi en hins vegar veit ég eitt einfalt svar við spurningunni um hvað það er sem mun alltaf standa í vegi fyrir því að þú náir markmiðum þínum.  Afsakanir Það … Halda áfram að lesa: Besti samningur í heimi!

Snilldar næring eftir æfingu

Æfingar einstaklinga eru ólíkar og mis krefjandi. Til að ná árangri og bæta sig stöðugt þarf að huga vel að næringunni. Að fá góða næringu eftir æfingu er því gríðalega miklvægt. Prótein er eitt aðal byggingarefni líkamans og þurfum við þau til byggja upp og endurnýja vefi líkamans. Kolvetni eru mikilvæg því vöðvar líkamans kjósa kolvetni sem sinn aðalorkugjafa. Kolvetni eru til að fylla aftur … Halda áfram að lesa: Snilldar næring eftir æfingu