Besti samningur í heimi!

Sem þjálfari tala ég við mikið af fólki og fæ sendar fyrirspurnir um hvernig er best að koma sér í form, verða betri íþróttamaður, hlaupa hraðar, lyfta meira, verða heilbrigðari o.s.frv. Svörin eru mörg og mismunandi en hins vegar veit ég eitt einfalt svar við spurningunni um hvað það er sem mun alltaf standa í vegi fyrir því að þú náir markmiðum þínum.  Afsakanir Það … Halda áfram að lesa: Besti samningur í heimi!

Æfingin skapar meistarann – eða hvað?

Allir þekkja orðatiltækið “æfingin skapar meistarann”. Eins og með flestar klisjur er eitthvað til í því en samt er það ekki allur sannleikurinn. Í þessu tilfelli er nauðsynlegt að útskýra hvað “æfing” er. Er til dæmis alltaf sniðugt að æfa bara meira? Alveg örugglega ekki. Í badminton – og sennilega í flestum íþróttum – er lítill munur á magninu sem bestu 2-300 spilarar heims eru … Halda áfram að lesa: Æfingin skapar meistarann – eða hvað?

Sjónmyndaþjálfun – sjálfstraust og undirbúningur

Andlegur Undirbúningur Hvernig getum við undirbúið okkur undir eitthvað sem við höfum ekki upplifað áður og aukið sjálfstraust á sama tíma? Þegar ég keppi og næ mínum besta árangri, þá hefur það nær alltaf verið þegar hausinn á mér er í autopilot og ég þarf ekki að taka ákvarðanir, heldur bara framkvæma. Ég veit nákvæmlega hvað kemur næst og þarf ekki að vera hugsa fyrir … Halda áfram að lesa: Sjónmyndaþjálfun – sjálfstraust og undirbúningur

Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Hvíldardagur – Sunnudagur Sunnudagurinn er eini dagur vikunnar sem ég æfi ekki, hvort sem það er að stinga mér ofan í sundlaugina eða taka á því í ræktinni. Þrátt fyrir það, þá er þessi dagur jafn mikilvægur og allir aðrir æfingadagar. Fyrir mér þá snúast sunnudagar um að hlaða batteríin og undirbúa líkamann fyrir átök vikunnar með því að einblína á endurheimt. Hvíld og árangur … Halda áfram að lesa: Æfingadagbók: Anton Sveinn #2

Algengustu meiðsli í golfi, ástæður þeirra og hvernig megi forðast þau

Vinstri þumall og hryggur Flestir atvinnukylfingar hafa á einhverjum tímapunkti á ferlinum lent í meiðlsum enda samanstendur golfsveiflan af miklum snúningi og miklum sprengikraft án þess að hreyfa sig úr stað. Það gefur því auga leið að hreyfingar sem þessar valda miklu álagi á líkamann enda ekki mjög náttúrulegar. Ég sjálf hef lent í meiðslum, sum þeirra hafa verið minniháttar en önnur munu hafa áhrif … Halda áfram að lesa: Algengustu meiðsli í golfi, ástæður þeirra og hvernig megi forðast þau

Hvað myndi ég segja við mig sem 16 ára?

Það er alltaf auðvelt að vera vitur eftirá. Hver þekkir það ekki? Nú er ég að nálgast endinn á mínum ferli sem gefur mér þetta líka frábæra tækifæri til þess að líta til baka á allt sem ég hef lært á leiðinni. Ég er langt frá því að vera sama manneskjan og ég var og það er ekki bara vegna þess að tíminn hefur liðið. … Halda áfram að lesa: Hvað myndi ég segja við mig sem 16 ára?