Sigrún Haraldsdóttir – Happy Hips og bandvefslosun

Sigrún Haraldsdóttir er eigandi Happy Hips, sem er æfingakerfi þar sem hún blandar saman bandvefsnudd, hreyfiflæði, teygjur og slökun til að fá sem mest út úr líkamanum. Hún mætti með Beinu með sér og við skoðuðum líkamann og hvernig við getum látið hann vinna með okkur.  Sigrún fór yfir margt í þættinum eins og:  – Hvernig við rúllum okkur og hvað gerist í líkamanum– Hvernig bolta … Halda áfram að lesa: Sigrún Haraldsdóttir – Happy Hips og bandvefslosun

Viran Morros – retired Spanish handball player

Viran Morros þykir einn besti varnarmaðurinn í handbolta síðustu 20 ára. Viran er spænskur 41 árs retired handboltamaður sem lék meðal annars með Barcelona Ciudad Real, Paris saint-germain, Fuchse Berlin og fleirum.  Viran á bronz frá Ólympíuleikunum, þrjár medalíur frá Heimsmeistaramótinu og fjórar frá Evrópumeistaramótinu, þá hefur hann þrisvar sinnum unnið Meistaradeild Evrópu með Barcelona. Viran hefur meðal annars spilað með Ólafi Stefáns, Guðjóni Val, … Halda áfram að lesa: Viran Morros – retired Spanish handball player

Kristinn Jónasson – Skattamál íþróttafélaga og körfubolti

Kristinn Jónasson er lögmaður og eigandi hjá KPMG Law. Kristinn er einnig formaður körfuboltans í Haukum, en sjálfur lék hann með Haukum lengi. Þá er hann einnig einn af stofnendum körfuboltaliðs Hauka Special Olympics liðsins.  Undanfarið hefur verið rætt um skattalegt regluverk í tengslu m við íþróttafélög, sem er mikið áhyggjuefni innan íþróttahreyfingarinnar. Kristinn skrifaði grein „Íþrótta­hreyfingin glímir við skatt­yfir­völd“ og hélt fyrirlestur um viðfangsefnið. Þetta snertir íþróttalífið í … Halda áfram að lesa: Kristinn Jónasson – Skattamál íþróttafélaga og körfubolti

Unnar Helgason – Osteopati

Unnar Helgason er Osteopati og þjálfari, hann segir okkur frá samvinnu hans og Gunnars Nelsons sem á nú bardaga í mars. Þá vinnur hann með Eygló Fanndal sem keppir í Ólympískum lyftingum og hefur komið einmitt í Klefann. Þá hefur hann einnig unnið með fólki frá Hollywood þegar þau eru í tökum hér á landi og segir okkur aðeins frá því.  Unnar fer yfir ýmislegt … Halda áfram að lesa: Unnar Helgason – Osteopati

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir – Landsliðskona í knattspyrnu

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 23 ára er leikmaður leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, en er á láni frá Bayern Munich. Karólína er ein af lykil leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins, hún hefur leikið um 50 leiki með landsliðinu og ræðir EM sem fer fram í Sviss í sumar og stemmninguna í landsliðinu.   Karólína fer yfir ferilinn og leiðina að atvinnumannaferlinum í Þýskalandi, hvernig gekk að aðlagast … Halda áfram að lesa: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir – Landsliðskona í knattspyrnu

Dr. Birna Varðardóttir – REDs – Orkuskortur í íþróttum

Dr. Birna Varðardóttir hefur síðustu 10 ár verið að mennta sig í því sem tengist næringu og þjálfun, þá hefur hún mikið verið að skoða hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, eða það sem við köllum REDs (Relative Energy Deficiency in sport). Á sínum tíma glímdi Birna við átröskun og þar af leiðandi langaði hana að skilja betur hvað gerðist í líkamanum og hvers vegna. Birna gerði … Halda áfram að lesa: Dr. Birna Varðardóttir – REDs – Orkuskortur í íþróttum

Aron Pálmarsson – Landsliðsfyrirliði

Aron Pálmarsson einn besti handboltamaður Íslands og jafnvel einn sá besti í heimi.Aron hefur leikið með mörgum af bestu liðum heims eins og Kiel, Veszprém, Barcelona, Álaborg og FH. Aron hefur unnið marga af helstu titlum í Evrópu, verið íþróttamaður ársins, rookie of the year í Þýskalandi, valinn í All Star Team á Ólympíuleikunum, MVP í Championship league og fleira. Aron fer yfir ferilinn, segir okkur … Halda áfram að lesa: Aron Pálmarsson – Landsliðsfyrirliði

Elísabet Gunnarsdóttir – Knattspyrnuþjálfari

Elísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu kvenna knattspyrnu. 2023 hætti hún hjá Kristianstad til að róa á önnur mið og við bíðum spennt að sjá hvað hún tekur … Halda áfram að lesa: Elísabet Gunnarsdóttir – Knattspyrnuþjálfari

Eygló Fanndal Sturludóttir – Ólympískar lyftingar

Eygló Fanndal Sturludóttir er 23 ára læknanemi og ein sú besta í Ólympískum Lyftingum í -71 kg flokki. Í ár hefur Eygló sannað sig sem eitt af framtíðarstjörnum í Ólympískum lyftingum, hún varð Norðurlandameistari, Íslandsmeistari, Evrópumeistari U23 og í 4rða sæti á Heimsmeistaramótinu núna í desember. Þá var hún hársbreidd frá því að komast inn á Ólympíuleikana og ræðir um áætlanir hennar fram að 2028 … Halda áfram að lesa: Eygló Fanndal Sturludóttir – Ólympískar lyftingar

Guðbjörg Gunnarsdóttir – Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsins

Guðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi. Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri landsliðum sænska knattspyrnusambandsins, ásamt því að halda í fyrirlestra fyrir sænska sambandið sem snúast um markmannsþjálfun, þróun markvarða og … Halda áfram að lesa: Guðbjörg Gunnarsdóttir – Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsins

Snorri Steinn Guðjónsson – Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður

Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi.  Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræðir ferilinn og deilir reynslu sinni af mótlæti, meðal annars að klikka á mikilvægu víti … Halda áfram að lesa: Snorri Steinn Guðjónsson – Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður

Stjórnmálaflokkarnir í Klefanum að ræða framtíð íþrótta á Íslandi

Hlaðvarpið Klefinn er með fókus á íþróttir og því bauð Silja Úlfars öllum stjórnmálaflokkunum til að setjast hjá sér og fara aðeins yfir íþróttatengd málefni og ræða framtíð íþrótta á Íslandi. Hægt er að hlusta á þættina á Spotify og Youtube meðal annars. Í fjárlögum ríkisins þá fellur íþróttir undir flokkinn „menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál“ heildarútgjöld í þennan lið nema 22 milljarða, sem skiptist … Halda áfram að lesa: Stjórnmálaflokkarnir í Klefanum að ræða framtíð íþrótta á Íslandi

Margrét Lára – Hvernig seturðu þér markmið?

Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Hún kom í Klefann og hægt er að hlusta á þáttinn með henni hér. Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og … Halda áfram að lesa: Margrét Lára – Hvernig seturðu þér markmið?

Margrét Lára Viðarsdóttir – Knattspyrnulegend og sálfræðingur

Margrét Lára Viðarsdóttir er ein farsælasta knattspyrnukona Íslands, en í dag starfar hún sem sálfræðingur á Heil Heilsumiðstöð, þar sem hún vinnur með mikið af íþróttafólki. Athugið að neðst er hægt að finna tímalínu þáttarins. Margrét Lára spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á 15da ári með ÍBV, þá lék hún með Val, Duisburg, Linköpings, Kristianstads, Potsdam og endaði svo ferilinn 2019 með Íslandsmeistaratitil hjá Val. Þá … Halda áfram að lesa: Margrét Lára Viðarsdóttir – Knattspyrnulegend og sálfræðingur

Þjálfun kvenna og tíðahringurinn: Hluti 2 – Tíðahringurinn

Tíðahringurinn Tíðahringurinn er stór breyta í umræðunni um þjálfun kynjanna. Þó það halli á konur innan íþróttavísindanna og þörf sé á frekari rannsóknum, þá hafa ýmis svið verið rannsökuð meira en önnur. Tíðahringurinn hefur t.a.m. verið talsvert rannsakaður, en þá út frá því hvaða áhrif hreyfing, næring og aðrir þættir hafa á hann. Í dag höfum við þó snúið spurningunni við og viljum vita meira … Halda áfram að lesa: Þjálfun kvenna og tíðahringurinn: Hluti 2 – Tíðahringurinn

Þjálfun kvenna og tíðahringurinn: Hluti 1 – Þjálfun kvenna

Samkvæmt nýlegri samantektarrannsókn sem tók saman rannsóknir innan íþróttavísindanna frá árunum 2014 – 2020 voru aðeins 6% þeirra með áherslu eingöngu á konur. Það er því augljóst að það hallar mjög á konur innan íþróttavísindanna. Þó eru jákvæð teikn á lofti þar sem við sjáum til að mynda vöxt í áhuga, fjármagni og umfjöllun og í takt við það fjölgun í rannsóknum á konum. Kynjabilið … Halda áfram að lesa: Þjálfun kvenna og tíðahringurinn: Hluti 1 – Þjálfun kvenna

Þýdd grein: „Sænsk viðvörun til norskra íþrótta: Ekki gera eins og við“

Rithöfundurinn og sænski blaðamaður Aftonbladet Patrik Brenning skrifaði bókina „Svo sigrum við aftur“ „Så vinner vi igen“ en þar er talað um neikvæða þróun í sænskum barnaíþróttum, hann ss varar við þróunina í sænskum afreksmálum og Noregur virðist vera að dragast einnig aftur úr. Norski blaðamaðurinn Anders K. Christiansen skrifaði grein um sænsku bókina Så vinner vi igen, sem var þýdd hér með gervigreind yfir … Halda áfram að lesa: Þýdd grein: „Sænsk viðvörun til norskra íþrótta: Ekki gera eins og við“

Erlingur Richardsson – handboltaþjálfari

Erlingur Richardsson íþróttafræðingur og handboltaþjálfari settist í Klefann hjá Silju Úlfars og ræddi handbolta þjálfaraferilinn og hvernig það er að fara í nýtt umhverfi og setja saman nýtt teymi og lið. Erlingur starfar núna hjá Austuríska liðinu Mödling þar sem verið sé að byggja upp nýtt lið „mitt hlutverk er að koma minni heimspeki inn í klúbbinn, hjálpa þjálfurum og kenna þeim og vera þeim … Halda áfram að lesa: Erlingur Richardsson – handboltaþjálfari

Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun – Arnar Sölvi Íþróttanæringarfræðingur

KLEFINN x Arnar Sölvi Næringarfræðingur Nýjasti viðmælandinn í „Klefinn með Silju Úlfars“ er Arnar Sölvi Arnmundsson íþróttanæringarfræðingur hjá Nutreleat. Arnar leggur mikið upp úr því hvernig íþróttafólk getur hámarkað árangur sinn í íþróttum með betri næringu, það er ekki nóg að æfa bara, það þarf að horfa á þetta frá fleirum hliðum eins og næringu, svefn og andlegri heilsu meðal annars. Næring í íþróttum: Grunnatriðin … Halda áfram að lesa: Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun – Arnar Sölvi Íþróttanæringarfræðingur

Arnar Sölvi Arnmundsson – Íþróttanæringafræðingur

Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur.  Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira.  Margt kom fram í þættinum meðal annars:  Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og … Halda áfram að lesa: Arnar Sölvi Arnmundsson – Íþróttanæringafræðingur