Viran Morros þykir einn besti varnarmaðurinn í handbolta síðustu 20 ára. Viran er spænskur 41 árs retired handboltamaður sem lék meðal annars með Barcelona Ciudad Real, Paris saint-germain, Fuchse Berlin og fleirum.
Viran á bronz frá Ólympíuleikunum, þrjár medalíur frá Heimsmeistaramótinu og fjórar frá Evrópumeistaramótinu, þá hefur hann þrisvar sinnum unnið Meistaradeild Evrópu með Barcelona. Viran hefur meðal annars spilað með Ólafi Stefáns, Guðjóni Val, Aroni Pálmars og Sigfúsi Sigurðssyni. Talant Dujshebaev þjálfari kom til tals og í lokin þá má heyra hljóðskilaboð frá Talant sjálfum þar sem hann ræðir Viran.
Viran er að undirbúa handboltanámskeið á Íslandi í sumar – frekari upplýsingar koma inn í byrjun mars – en hægt er að fylgjast með instagram síðunni þeirra @international.handball.
Í þættinum þá fer hann yfir íslendingana sem hann lék með og gegn, liðin sem hann lék með, hann ræðir varnar vinnu sem hann er sérfræðingur í, handbolta unglinga, spænska landsliðið og margt fleira.
Spurningar til hans komu frá þjálfurum, foreldrum og metnaðarfullum handbolta iðkendum á öllum aldri.
Njótið vel.
Samstarfsaðilar Klefans eru: Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk.
@viranmorros
@international.handball
@siljaulfars
@klefinn.is


