Margrét Lára Viðarsdóttir er ein farsælasta knattspyrnukona Íslands, en í dag starfar hún sem sálfræðingur á Heil Heilsumiðstöð, þar sem hún vinnur með mikið af íþróttafólki. Athugið að neðst er hægt að finna tímalínu þáttarins.
Margrét Lára spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á 15da ári með ÍBV, þá lék hún með Val, Duisburg, Linköpings, Kristianstads, Potsdam og endaði svo ferilinn 2019 með Íslandsmeistaratitil hjá Val. Þá hefur hún spilað 124 landsleiki og skorað í þeim 79 mörk, en hún lék með öllum landsliðunum á sama tíma. Aðeins Margrét Lára og Olga Færseth hafa skorað yfir 200 mörk í íslensku deildinni. Margrét ræðir ferilinn og lærdóminn og einnig hvernig það er að koma til baka eftir meiðsli og barnseignir.
Sálfræði og íþróttirnar
Margrét Lára aðstoðar íþróttafólk á öllum aldri að takast á við ýmsar áskoranir og í þættinum talar hún um að sigrast á meiðslum, kvíða og ótta, hvernig á að vinna í sjálfstraustinu og vera hugrakkur, þá gefur hún þjálfurum ýmis ráð, en hún leggur áherslu á það að þekkja iðkendur sína.
„Mikilvægt er að íþróttafólk geri sér grein fyrir að andlegur styrkur er ekki síður mikilvægur en líkamlegur,“ segir hún. Þá segir Margrét að það sé eðlilegt að vera kvíðinn, en mikilvægt sé að vinna með þessar tilfinningar, „Mótlætið tekur á, en það er einnig lærdómur. Það skiptir máli að læra hvernig á að bregðast við ótta,“ útskýrir hún, en í þættinum fer hún betur yfir þetta.
Meiðslin og baráttan
Margrét var meidd lengi aftan í læri og endaði í aðgerð, þá sleit hún krossbönd rétt fyrir EM 2017 og segir frá áfallinu og hvernig henni var hent úr hópnum í kjölfarið. Hún fer yfir það hvernig hún kom til baka og að „andlegur styrkur er nauðsynlegur þegar maður glímir við meiðsli,“ útskýrir hún. Hún leggur áherslu á að þjálfarar og félög þurfi að vera útsjónasöm í því að vinna með íþróttafólki í þessum aðstæðum og veita þeim viðeigandi stuðning.
Fjölbreytni í íþróttum
Margrét Lára mælir með að börn fá að leika sér í fjölbreyttri hreyfingu og fleiri íþróttum, sérhæfing eigi ekki að byrja of snemma. „Börnin verða að fá tækifæri til að prófa ýmsar íþróttir, þetta eykur vöxt og þroska þeirra,“ segir hún. Einnig er mikilvægt að foreldrar og þjálfarar leyfi börnum að finna eigin leiðir í íþróttum og að það sé mikilvægt að fá verkefni við hæfi og rðir um afreksvæðingu og að það megi aldrei mismuna börnum. Þá minnir hún á að íþróttir og tómstundir eru forvarnir.
Þetta og margt fleira, hvetjum þig að hlusta á þáttinn og punkta hjá þér það sem nýtist þér og þínum. Mátt endilega deila þættinum, takk fyrir.
Þátturinn er í boði Auður, Útilífs, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.
Þú finnur okkur á instagram
@mlv9
@Klefinn.is
@Siljaulfars
Tímalínan
4:00 – knattspyrnuferillinn
8:30 – Meiðslin
12:20 – Íþróttamaður ársins
15:35 – Landsleikir og að spila með öllum landsliðunum
22:20 – Afreksmiðuð of snemma og fjölbreyttar íþróttir
29:20 – Heil Heilsumiðstöð
33:50 – Meiðsli íþróttafólks og óttinn sem fylgir
40:20 – Forgangsröðun, Menntaskólarnir og brottfall
42:45 – Meiðsli og hlutverk þjálfara
43:45 – Krossbandaslit fyrir EM
47:00 – Hvað geta þjálfarar gert?
51:20 – Kvíði íþróttafólks
52:30 – Koma aftur eftir barnseignir
55:35 – Ótti og kvíði, félagskvíði, hverjir eru triggerarnir
1:02:10 – Þjálfarar og samtal við íþróttafólkið
1:04:40 – Félagskvíði og að fara inn í aðstæður
1:17:15 – Andlegur styrkur
1:21:10 – hlutverk foreldra
1:24:45 – Halda börnum í íþróttum, höfnun og fleira
1:28:00 – Hver er þín hleðsla?
1:36:55 – Imposter Syndrome
1:41:20 – Sjálfstraust og sjálfstal

