Guðni Íslandsmeistari með stóra bætingu

Kúluvarpið á Íslandsmeistaramótinu í frjálsum fór fram í dag og mætti Guðni Valur þar til leiks í hörku formi og bætir sinn besta árangur enn eina ferðina þegar hann varpaði kúlunni 18.60m í seinustu umferð. Mótið byrjaði rólega hjá okkar manni og byrjaði hann á að gera sitt fyrsta kast ógilt, neglir síðan á 17.84m í annarri umferð og 17.78m í þeirri þriðju. Gerir ógilt … Halda áfram að lesa: Guðni Íslandsmeistari með stóra bætingu

Ólafía í 2. sæti kvenna á Evolve mótaröðinni

Lokahringurinn á Hacienda del Alamo Open mótinu á Spáni fór fram í dag. Mótið er hluti af Evolve mótaröðinni. Þar keppa saman áhugamenn, atvinnumenn, konur og karlar. 12 íslenskir kylfingar frá Golfklúbbi Reykjavíkur eru búnir að vera við æfingar á Spáni og voru á meðal keppenda. Þar á meðal var Ólafía okkar hjá Klefanum. Íslendingarnir stóðu sig með sannkölluðu prýði. Andri Þór leiddi mótið lengi … Halda áfram að lesa: Ólafía í 2. sæti kvenna á Evolve mótaröðinni

Ásdís með bætingu í kúluvarpi, aðeins 1cm frá Íslandsmeti

Ásdís Hjálmsdóttir Annerud keppti á Spåret Grand Prix, sem er hluti af Folksam Grand Prix mótaröðinni í Svíþjóð . Ásdís bætti sig í kúluvarpi þegar hún kastaði 16.18m og er aðeins 1 cm frá Íslandsmetinu. Ásdís endaði í 5. sæti á þessu mjög sterka móti. Fanny Roos sigraði mótið með yfirburðum með kasti upp á 18.19cm en hún er meðal annars Evrópu meistari í kúluvarpi … Halda áfram að lesa: Ásdís með bætingu í kúluvarpi, aðeins 1cm frá Íslandsmeti

Anton á 20. besta tímann í heiminum

Anton Sveinn McKee keppti um helgina á Pro Swim Series í Knoxville. Í gær náði hann frábærum árangri í 100m bringusundi, sjá grein „Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville„. Anton keppti á laugardeginum í 200m bringusundi og varð þriðji inn í úrslitin á tímanum 2:15.61. Í úrslitasundinu synti hann á 2:11.34 og hafnaði í 2. sæti. Þetta er frábær byrjun á … Halda áfram að lesa: Anton á 20. besta tímann í heiminum

Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville

Anton Sveinn McKee keppti á sínu fyrsta móti á Ólympíuárinu, en Anton Sveinn er sá eini sem hefur nú þegar náð lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Tokyo sem hefjast í júlí.   Hann dvelur nú í Virginia í Bandaríkjunum þar sem hann býr og æfir stíft í góðum hóp afreksmanna þar.  Anton keppti á Pro Swim Series í Knoxville, Tennessee sem er sterkt sundmót í Bandaríkjunum. Hann … Halda áfram að lesa: Anton endaði í 2. sæti á sterku móti í Knoxville