RIG – Frjálsar í dag!

Reykjavíkur leikarnir – RIG – klárast í dag með Frjálsíþrótta keppninni. Bestu íþróttamenn Íslands keppa gegn erlendum keppinautum og verður spennandi að fylgjast með. Ásdís Hjálms og Guðni Valur keppa í kúluvarpinu. Margir góðir íþróttamenn verða í eldlínunni, hvetjum ykkur til að mæta í Laugardalshöll, en annars verður veislan sýnd í beinni útsendingu á RÚV í dag. Halda áfram að lesa: RIG – Frjálsar í dag!

Sveinbjörn Jun Iura keppti í Ísrael í dag

Sveinbjörn keppti á sterku móti í Tel Aviv, en þetta var fyrsta Ólympíu punkta mótið 2020. Hann tapaði glímunni en ekki mikið vantaði upp á. „Tap í dag en hörku glíma, vantaði svo lítið uppá að ég náði að skora úr köstunum og að ná 3 shidoinu! Svekkjandi en margt sem ég get byggt af þessari glímu! Áfram gakk.“ sagði Sveinbjörn. Halda áfram að lesa: Sveinbjörn Jun Iura keppti í Ísrael í dag