Ólafur Loftsson – Afreksstjóri GSÍ

Ólafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi.

Í spjallinu fer hann yfir:

  • Vegferð sína sem afrekskylfings, reynslu hans á bandaríska háskólakerfinu og hvernig hann aðstoðar ungt afreksfólk við að komast í skóla með golfstyrk.
  • Hlutverk PGA á Íslandi og þróun golfíþróttarinnar hér heima.
  • Starf hans sem afreksstjóri GSÍ, markmið sambandsins og verkefni á sviði afreksmála.
  • Stærstu verkefni og mót sumarsins, bæði heima og erlendis.
  • Golf14 verkefnið og mikilvægi fjölbreyttrar íþróttaiðkunar hjá börnum.
  • Andlega og líkamlega þáttinn.
  • Ráð til bæði kylfinga um hvernig bæta má leik sinn í sumar.

Þáttur sem enginn golfáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Peppið var svo mikið að Silja fór að skoða golfkennara eftir þetta spjall.

Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. 

@gsigolf
@klefinn.is
@siljaulfars