Jimmy Ekstedt er Svíi með sterkar tengingar við Ísland, hann þjálfar hér á landi og er giftur íslenskri konu og saman eiga þau tvær stúlkur. Þegar þátturinn var tekinn var hann landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins en hefur nú sagt upp störfum þar og tekið að sér verkefni á Íslandi.
Þótt Jimmy komi úr fimleikunum þá hefur hann þjálfað íþróttafólk úr öllum íþróttum, þátturinn er því fyrir fólk sem hefur áhuga á íþróttum unglinga og afreksfólks! Jimmy ræðir þjálfarahlutverkið, hvað gerir góðan þjálfara og mikilvægi þess að skapa jákvætt umhverfi fyrir íþróttafólk og framtíð íþróttaþjálfunar. Tíðahringur íþróttafólksins, kynþroskaskeiðið, hvenær á að byrja að sérhæfa sig, íþróttaforeldrar og eru íþróttir barnanna orðið að fjölskyldu „business“? Hann segir hvernig Svíar skoða meiðslasögu íþróttafólksins þegar kemur að landsliðsvali, næringu íþróttafólk, mikilvægi þess að fylgja skipulögðu æfingaplani og að ná markmiðunum sínum.
Þá segir hann frá nýju concepti í Svíþjóð sem er Íþrótta áhalda banki (Sport equipment bank).
Jimmy hefur áhyggjur að íþróttir á Íslandi séu að dragast aftur úr, hvort við séum stöðnuð og spyr hvar eru fyrirmyndirnar, því þær hvetja jú til íþróttaiðkunar.
Skelltu þér í göngutúr og taktu Jimmy Ekstedt með þér.
Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk.
@jimmyeks
@klefinn.is
@siljaulfars
