Klefinn 2.0

Fyrir nokkrum árum opnaði Klefinn með það markmið að búa til vettvang fyrir íþróttafólk sem stefndi á Ólympíuleikana 2020. Þá var markmiðið að búa til vettvang fyrir tilvonandi Ólympíufara, gera þau sýnilegri og hjálpa þeim að fá styrki sem auðveldaði þeim að eltast við ÓL drauminn. Loftið fór því miður úr Klefanum þegar Ólympíuleikunum var frestað vegna covid.

Reglulega höfum við fengið fyrirspurnir um hvað varð um Klefann og því ákváðum við að vekja Klefann aftur upp en á öðrum forsendum.

🏆Klefinn er fyrir íþróttafólk úr öllum íþróttagreinum á öllum aldri

Draumurinn er:

– Að íþróttafólk hafi vettvang til að kynna sig, segja frá hvað þau eru að gera, greina frá árangri sínum, stækka samfélagsmiðla þeirra, að þau verði sýnilegra og nái til nýrra samstarfs-/styrktaraðila.

– Að sérfræðingar (sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, næringarfræðingar, þjálfarar, fyrrum íþróttafólk og fleiri) skrifi greinar til fólks sem hefur áhuga á að ná árangri, bæta sína heilsu og ná sínum markmiðum.

– Að fleiri fái innsýn í heim íþróttafólks, kynnist þeim, læri af þeim, verði motiverað af þeim og fylgi þeim.

Til íþróttafólks:

Klefinn er hugsaður sem íþróttahlaðborð, endilega taggaðu @klefinn.is á instagram í story og sem collaborator þegar þú póstar íþróttatengdu efni á feedið, fjölbreyttar íþróttamyndir og sögur af ykkur, t.d. keppnissaga, úrslit, æfingar, eitthvað íþróttatengt, motivation, pepp eða eitthvað sem er tengt íþróttum og að ná árangri. Draumurinn væri að fylgjendahópurinn ykkar stækki og nafnið verði þekktara.

Markmiðið er að skapa íþróttatengdan hóp, vonandi kynnist þið einnig íþróttafólki sem veita ykkur einnig innblástur og þið getið veitt öðrum innblástur.

Kannski væri þetta einnig vettvangur fyrirtækja í leit að flottum fyrirmyndum, eða fyrirsætum 😊nú eða kannski er þetta kjörið tækifæri til að ná athygli íþróttafréttafólks 😉

Fyrir frekari upplýsingar endilega sendu okkur skilaboð í gegnum instagram eða á klefinn@klefinn.is

Til sérfræðinga og annarra:

Við leitum af greinum frá öllum tengdum íþróttum, heilsu, leiðum til að bæta sig og þess háttar. Við erum opin fyrir öllu, einnig t.d. greinum úr podcöstum sem fjalla um íþróttir og heilsu.

Endilega hafðu samband á klefinn@klefinn.is og fylgstu með okkur á facebook og instagram.

Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt taka þátt með einhverjum hætti, við ætlum að láta þetta rúlla og sjá hvað gerist.

Kveðja
Klefagengið