Guðbjörg Gunnarsdóttir – Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsins

Guðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi. Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri landsliðum sænska knattspyrnusambandsins, ásamt því að halda í fyrirlestra fyrir sænska sambandið sem snúast um markmannsþjálfun, þróun markvarða og … Halda áfram að lesa: Guðbjörg Gunnarsdóttir – Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsins

Snorri Steinn Guðjónsson – Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður

Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi.  Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræðir ferilinn og deilir reynslu sinni af mótlæti, meðal annars að klikka á mikilvægu víti … Halda áfram að lesa: Snorri Steinn Guðjónsson – Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður

Stjórnmálaflokkarnir í Klefanum að ræða framtíð íþrótta á Íslandi

Hlaðvarpið Klefinn er með fókus á íþróttir og því bauð Silja Úlfars öllum stjórnmálaflokkunum til að setjast hjá sér og fara aðeins yfir íþróttatengd málefni og ræða framtíð íþrótta á Íslandi. Hægt er að hlusta á þættina á Spotify og Youtube meðal annars. Í fjárlögum ríkisins þá fellur íþróttir undir flokkinn „menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál“ heildarútgjöld í þennan lið nema 22 milljarða, sem skiptist … Halda áfram að lesa: Stjórnmálaflokkarnir í Klefanum að ræða framtíð íþrótta á Íslandi

Margrét Lára – Hvernig seturðu þér markmið?

Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Hún kom í Klefann og hægt er að hlusta á þáttinn með henni hér. Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og … Halda áfram að lesa: Margrét Lára – Hvernig seturðu þér markmið?

Margrét Lára Viðarsdóttir – Knattspyrnulegend og sálfræðingur

Margrét Lára Viðarsdóttir er ein farsælasta knattspyrnukona Íslands, en í dag starfar hún sem sálfræðingur á Heil Heilsumiðstöð, þar sem hún vinnur með mikið af íþróttafólki. Athugið að neðst er hægt að finna tímalínu þáttarins. Margrét Lára spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á 15da ári með ÍBV, þá lék hún með Val, Duisburg, Linköpings, Kristianstads, Potsdam og endaði svo ferilinn 2019 með Íslandsmeistaratitil hjá Val. Þá … Halda áfram að lesa: Margrét Lára Viðarsdóttir – Knattspyrnulegend og sálfræðingur

Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun – Arnar Sölvi Íþróttanæringarfræðingur

KLEFINN x Arnar Sölvi Næringarfræðingur Nýjasti viðmælandinn í „Klefinn með Silju Úlfars“ er Arnar Sölvi Arnmundsson íþróttanæringarfræðingur hjá Nutreleat. Arnar leggur mikið upp úr því hvernig íþróttafólk getur hámarkað árangur sinn í íþróttum með betri næringu, það er ekki nóg að æfa bara, það þarf að horfa á þetta frá fleirum hliðum eins og næringu, svefn og andlegri heilsu meðal annars. Næring í íþróttum: Grunnatriðin … Halda áfram að lesa: Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun – Arnar Sölvi Íþróttanæringarfræðingur

Arnar Sölvi Arnmundsson – Íþróttanæringafræðingur

Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur.  Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira.  Margt kom fram í þættinum meðal annars:  Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og … Halda áfram að lesa: Arnar Sölvi Arnmundsson – Íþróttanæringafræðingur

Lára Hafliðadóttir – Þjálfun kvenna og tíðahringurinn

Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar.  Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og … Halda áfram að lesa: Lára Hafliðadóttir – Þjálfun kvenna og tíðahringurinn

Kristín Þórhallsdóttir – Kraftlyftingarkona

Kristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet.  Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð, þá fer hún aðeins yfir Kraftlyftingarnar, en þar er keppt í samanlögðum árangri í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ef þú ert að … Halda áfram að lesa: Kristín Þórhallsdóttir – Kraftlyftingarkona

EM í götuhjólreiðum 11.-15. september

Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september. Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km.  Átta íþróttafólk er nú í Belgíu, öll keppa þau í götuhjólreiðum en fjögur þeirra keppa í tímatöku einnig. Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambandsins sagði okkur frá mótinu og fór yfir … Halda áfram að lesa: EM í götuhjólreiðum 11.-15. september

Anton Sveinn Mckee – sundmaður og Ólympíufari

Anton Sveinn McKee sundmaður og fjórfaldur Ólympíufari settist hjá Silju og fóru yfir það hvað er að vera afreksíþróttamaður.  Anton gerði upp Ólympíuleikana hvað var öðruvísi og truflaði keppendur einnig ræddi hann hvað er frammundan þegar skýlan nálgast hilluna.  Þá sagði hann okkur ítarlega frá hvernig hann setur markmið og hvernig hann brýtur þau niður og hvað hann gerir til að ná þeim, hvernig vinnur … Halda áfram að lesa: Anton Sveinn Mckee – sundmaður og Ólympíufari

Ingeborg Eide – kastari og Paralympics fari

Ingeborg Eide Garðarsdóttirer kúluvarpari úr Ármanni og keppir í flokki F37  í kúluvarpi, en hún er ein af fimm sem keppa fyrir Íslands hönd á Paralympics sem fer fram í París dagana 28. ágúst – 8. september.  Ingeborg á Íslandsmetið í kúluvarpi sem er 9.83 m og þá á hún einnig íslandsmetið í kringlukasti. Hún keppir á Paralympics þann 31. ágúst í kúluvarpi. Ingeborg þekkir … Halda áfram að lesa: Ingeborg Eide – kastari og Paralympics fari

Vésteinn Hafsteinsson – Afreksstjóri ÍSÍ 

Sem þjálfari þá hefur Vésteinn þjálfað 56 einstaklinga frá 10 löndum sem hafa samanlagt náð í 20 verðlaun á alþjóðlegum stórmótum – þar af 5 verðlaun á ÓL.  Vésteinn Hafsteinsson er einn sigursælasti þjálfari okkar Íslendinga og nú er hann fluttur heim og starfar sem Afreksstjóri ÍSÍ.  Hann er nú á leið á sína 11 Ólympíuleika en í nýju hlutverki, hann hefur farið áður sem … Halda áfram að lesa: Vésteinn Hafsteinsson – Afreksstjóri ÍSÍ 

Podcast: Hlaupaspjall Klefans í Útilíf

Þann 25. júní vorum við með hlaupaspjall í Útilíf þar sem Afreksfólk Útilífs settist niður með Silju. Þorsteinn Roy og Andrea Kolbeinsdóttir bæði hlauparar svöruðu ýmsum spurningum um hlaup, undirbúning og fleira, þá var einnig Hildur Kristín sjúkraþjálfari með og svaraði spurningum um hlaupara meiðsli og gaf ráðleggingar.. Í þættinum ræða þau upphitun, recovery aðferðir, hreyfiflæði, hlaupaskó, meiðsli og annað sem er gott að hafa … Halda áfram að lesa: Podcast: Hlaupaspjall Klefans í Útilíf

Jón Halldórsson – eigandi Kvan og formaður Vals í handbolta

Jón Halldórsson fór yfir víðan völl þegar hann ræddi leiðtoga, liðsheild, menningu innan liða, Evrópumeistara ævintýri Valsar og fleira.Jón er einn af eigendum KVAN sem er mennta- og þjálfunarfyrirtæki. Einnig er hann formaður handknattleiksdeildar Vals sem átti stórt tímabil bæði hjá konunum og körlunum. Jón ræddi hvernig menningin var sköpuð innan liðsins, hvernig þeir fjármögnuðu Evrópukeppnina og framhaldið hjá bæði kvenna- og karlaliðinu. Þá ræddi … Halda áfram að lesa: Jón Halldórsson – eigandi Kvan og formaður Vals í handbolta

Hafdís Sigurðardóttir – hjólreiðakona Íslands

Hafdís er margfaldur Íslands- og bikarmeistari, en hún keppir bæði í götuhjólreiðum, tímatöku og gravel. Hafdís keppir fyrir Íslands hönd og hefur farið á Evrópumeistaramót sem og Heimsmeistaramót. Hafdís fer með okkur yfir ferilinn, hvað þarf til að ná árangri í hjólreiðum hvernig er að æfa hjólreiðar á Íslandi, einnig þegar það snjóar ennþá í júní. Þá ræðir hún mótin hér heima, samkeppnina og stórmótin … Halda áfram að lesa: Hafdís Sigurðardóttir – hjólreiðakona Íslands

Helena Sverrisdóttir – fyrrum atvinnukona í körfubolta

Helena er ein farsælasta körfuboltakona Íslands. Helena á nánast öll met sem hægt er að setja í körfuboltanum, en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 12 ára og fyrsta landsleik 14 ára.  Helena ræðir ferilinn, hún fór í Texas Christian University og náði frábærum árangri þar, en í haust verður hún tekin inn í frægðarhöll TCU. Helena spilaði sem atvinnukona í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi, en … Halda áfram að lesa: Helena Sverrisdóttir – fyrrum atvinnukona í körfubolta

Podcast: Arnar Freyr Theodórsson – umboðsmaður

Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður handboltamanna. Sjálfur lék Arnar handbolta lengi en fór út í umboðsmennsku þegar hann missti af tækifæri sem hann vildi ekki að aðrir myndu missa af.  Arnar Freyr segir okkur frá heimi umboðsmanna og hvað það felur í sér, en sjálfur segist hann vera í þjónustustarfi sem snýst mikið um samskipti. Þá ræðir Arnar einnig hvaða eiginleika hann vill sjá hjá … Halda áfram að lesa: Podcast: Arnar Freyr Theodórsson – umboðsmaður

Podcast: Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari

Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari var fyrsta konan í heiminum til að klára 400km Ultra-Gobi maraþonið undir 100 klukkustundum. Elísabet fer yfir feril sinn, hvernig hún byrjaði að hlaupa yfir í að vera í eigenda hóps Náttúruhlaupa og hvað starfið er fjölbreytt þar. Elísabet hefur 14 sinnum farið í Laugavegshlaupið, hún segir aðeins frá reynslu sinni úr hlaupinu. Bakgarðurinn hófst 4. maí og lauk þann 6. maí, … Halda áfram að lesa: Podcast: Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari

Podcast: Gréta Salóme – Söngkona, lagahöfundur og fiðluleikari

Gréta Salóme er þekkt fyrir hæfileika sína í tónlist, en til að ná árangri á stóra sviðinu þá þarftu að þora að dreyma, eltast við markmiðin þín og vera skipulögð. Gréta segir okkur frá hvernig hún setur sér markmið, hún segir okkur frá fjórum aðferðum sem hún notar til að ná árangri. Þá ræðir hún einnig hvernig er að vera tónlistarkona, hvernig hún byrjaði að … Halda áfram að lesa: Podcast: Gréta Salóme – Söngkona, lagahöfundur og fiðluleikari