Lára Hafliðadóttir – Þjálfun kvenna og tíðahringurinn

Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar. 

Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og að konur ættu að tracka tíðahringinn sinn, þá fer hún einnig yfir hormónabreytingar, getnaðarvarnir og fleira. 

Það er mikilvægt að opna umræðuna um blæðingar því það er eitthvað sem allar konur upplifa, þá er mikilvægt að karlar og þjálfarar þekki þetta einnig. 

“Það er flókið og áhugavert að þjálfa konur” 

“Við þurfum fleiri rannsóknir á konum, það er munur á milli kynjanna”

Þátturinn er í boði AuðurÚtilífsLemonNutrilenk og Hafið fiskverslun.

Þú finnur okkur á instagram
@larahaf
@Klefinn.is
@Siljaulfars