Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum

Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn. 

Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið og ýmislegt fleira. Það getur oft verið skemmtilegra að horfa á íþróttafólkið þegar maður þekkir aðeins til þess.

Ísland á þrjá keppendur á mótinu 

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir

keppir í sleggjukasti 14. september
@gudrunkaritas_

Sindri Hrafn Guðmundsson

keppir í spjótkasti 17. september
@sindrigudmundsson

Erna Sóley Gunnarsdóttir

keppir í kúluvarpi – 20. september
@erna_soley

Við vonumst til að þátturinn geri mótið enn meira spennandi fyrir ykkur. 

Tímalínan:

7:40 mín – Spretthlaup
36:58 mín – Grindarhlaup
52:40 mín – Lengri hlaup
1:11:20 mín – Kastgreinar
1:36:32 mín – Stökkgreinar
2:00:55 mín Tug- og Sjöþraut

Gleðilegt HM 

Fylgdu endilega Klefanum á instagram: @klefinn.is