Podcast #8 Tinna Jökulsdóttir – Sjúkraþjálfari + Fókus þjálfun

Tinna Jökulsdóttir er sjúkraþjálfari í Sporthúsinu og eigandi Fókus þjálfunar. Tinna kemur úr handboltanum og er meðal annars sjúkraþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. 

Hvað er fókus þjálfun? Þetta eru æfingar sem snúa að meiðslafyrirbyggjandi þáttum ásamt því að auka við færni hvers og eins leikmanns. Lögð er áhersla á liðkun, hreyfiteygjur, líkamsbeytingu, snerpu og samhæfingar þjálfun. Einnig er farið í jafnvægis- og styrktaræfingar þar sem unnið er með stöðugleikakerfið.

Hér er linkur á appið sem Tinna talar um – SwitchedOn.

Við hvetjum ykkur til að hlusta og læra, kannski fáið þið hugmyndir. Í þættinum má finna ráð fyrir íþróttafólk, þjálfara, foreldra og aðra sem hafa áhuga á íþróttum.

Tinna starfar sem sjúkraþjálfari í Sporthúsinu. Fljótlega opnar heimasíðan http://fokusthjalfun.is/

Þátturinn er í boði HeilsuhillunnarHafið fiskverslun og GoodGood

Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars       
@fokusthjalfun