Birgir Sverrisson – Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands

Birgir Sverrisson framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands er sestur hjá mér og við ætlum að ræða lyfjamál. 

Á heimasíðu Lyfjaeftirlitsins stendur að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að vernda hreint íþróttafólk og standa vörð um að íþróttir séu iðkaðar á jafnréttisgrundvelli. 

Þá er einnig farið inn á hagræðingu úrslita og veðmál sem það tengist heilindum í íþróttum eins og lyfjamálin. 

Þetta er klárlega þáttur sem íþróttafólk og/eða foreldrar ættu að hlusta á og hafa á hreinu.

Gagnlegar heimasíður

– Íslenska Lyfjaeftirlitið / antidoping.is
– Heimasíða WADA – allt útgefið efni t.d. tengt lyfjareglum sem og t.d. læknaleiðbeiningum vegna undanþága.
Netfræðsla WADA – fyrir alla sem tengjast íþróttum: íþróttafólk, þjálfarar, læknar, foreldrar eða aðrir.
– „High Risk“ listi yfir fæðubótaefni frá U.S. Anti-Doping Agency.
Fræðsla um hagræðingu úrslita á íslensku.

Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. 

@klefinn.is
@siljaulfars