Athlos frjálsíþróttamót kvenna 26. september

The world’s fastest women blaze a trail through the world’s greatest city for an electrifying night of grace, speed, and sound.

ATHLOS frjálsíþróttamót kvenna fer fram 26. september og hefst kl. 23:30 á íslenskum tíma og verður sýndur í beinni á Youtube hér.

Alexis Ohanian stofnandi Reddit og eiginmaður Serenu Williams stendur fyrir viðburðinum sem eingöngu konur keppa á. Hann hefur verið að vekja athygli á og fjárfesta í kvenna íþróttum en hann telur að frjálsíþróttir kvenna séu nálægt því að ná sama „hype“ og kvenna fótbolti og körfubolti. Ohanian segist trúa því að á næstu 3-4 árum munu frjálsar vaxa og þess vegna er hann að fjárfesta svona mikið í því núna.

8 milljónir fyrir sigurvegarann í hverri grein

Það sem er sérstakt við þetta mót er að aðeins konur keppa á þessu móti og verðlaunaféð er hærra en konur eru vanar að sjá, eða $60.000 (yfir 8 milljón fyrir hvern sigurvegara). Þá er mótinu streymt live á Youtube sem er nýtt, en oft hefur verið svo erfitt að horfa á svona mót, en Alexis vill gera þetta aðgengilegra til að gera íþróttakonurnar sýnilegri, til að búa til meiri stjörnur úr þeim. Aðeins er keppt í hlaupagreinum því þetta átti að vera áhorfendavænt partý þar sem Megan Thee Stallion tekur endasprettinn og lokar þessu frjálsíþróttamóti.

6 íþróttagreinar með 6 íþróttakonum í hverri grein

Keppendurnir eru topp keppendur í sinni grein, flest allar eiga verðlaun af Ólympíuleikunum, Heimsmeistaramótum eða bæði (og það fleiri en ein!). Hér stiklum við á stærstu nöfnunum og fjölda medalíu þeirra.

100m grind Masai Russell er nýkrýndur Ólympíumeistari frá því í París. Kendra Harrison – 1 Ól verðlaun, 3 HM verðlaun. Jasmine Camacho-Quinn – 2 Ól verðlaun og 2 HM verðlaun.

100mDaryll Neita – 3 ÓL verðlaun og 3 HM verðlaun. Marie-Josee Ta Lou-Smith – fjögur HM verðlaun.

400m – verða svakalegir, þvílíkar sleggjur þar! Alexis Holmes á ein gullverðlaun frá ÓL og 3 verðlaun frá HM. Marileidy Paulino 3 ÓL verðlaun og 3 verðlaun frá HM. Lieke Klaver frá Hollandi á 2 ÓL verðlaun og 5 frá HM, hún hleypur oft í boðhlaups sveit með Femke bol. Shamier Little 2 ÓL og 2 HM verðlaun. Salwa Eid Naser 1 ÓL verðlaun og 3 frá HM.

800m – Tsige Duguma sem vann til silfurverðlauna á ÓL í París. Mary Moraa vann til bronz verðlauna í París og á 2 medalíur frá Heimsmeistaramóti.

1500mFaith Kipyegon á heimsmetið í 1500m, hún á fjögur verðlaun frá Ólympíuleikunum (3 gull) og 6 verðlaun frá Heimsmeistaramótinu (4 gull), en hún hefur keppt í 1.500m og 5.000m hlaupum. Til að veita henni keppni mætir Gudaf Tsegay sem á 1 ÓL verðlaun en 7 HM verðlaun.

200mGabby Thomas er líklega stærsta nafnið, Gabby vann til þriggja gullverðlauna á Ólympíuleikunum í París og á núna 5 verðlaun frá Ólympíuleikum og 2 frá HM. Við hana keppir meðal annars Brittany Brown sem vann til bronz verðlauna í París, en Brittany keppir einnig í 100m hlaupinu.

Where Speed Meets Sound

Close the gap – 10% give back
10% af öllum tekjum af miðasölu, auglýsingastyrkjum og útsendingum verður dreift aftur til allra íþróttamanna sem taka þátt, sem gerir þetta að stærsta verðlaunaframboði í sögu kvennaíþróttakeppni.

Setting the pace – BIB Innovation
ATHLOS kynnir númer sem eru sérstaklega hönnuð til að passa á líkama kvenna. Þessi nýjung heldur íþróttamönnum okkar í fararbroddi í hverju smáatriði og eykur bæði frammistöðu og þægindi. Númerin eru límd á þau í stað hefðbundna, óþægilega öryggisnæla.

Setting the tone – Walk Out Songs
DJ Derrick „D-Nice“ Jones mun útbúa lag fyrir hvern íþróttamann, halda stemmningunni á ATHLOS mótinu til að búa til ógleymanlega keppni. á milli hlaupa og setja sviðið fyrir ógleymanlega keppni.

Þetta er áhugaverð tilraun til að stækka frjálsíþróttir kvenna, hvetjum ykkur til að fylgjast með.

Getur fylgst með mótinu á instagram hér.

Youtube linkur á mótið finnur þú hér.