VETRAR ÓL 2026

Vetrarólympíuleikarnir fara fram 6.-22. febrúar næstkomandi í Milano Cortina. Baráttan um sæti á leikunum er hörð og það mun endanlega skýrast á nýju ári hvað Ísland mun eiga marga keppendur á leikunum.

Skíðasamband Íslands tilnefndi átta einstaklinga í Ólympíuhóp ÍSÍ sem setur markið á Vetrarólympíuleikana, en hópurinn er skipaður öflugu skíða- og snjóbrettafólki sem hefur náð eftirtektarverðum árangri undanfarin ár. Afreksmiðstöð Íslands og Skíðasamband Íslands hafa haldið utan um hópinn og boðið upp á fræðslu og fagþjónustu.

Við ætlum að fylgjast með vegferð þeirra, fylgdu þeim á instagram með því að ýta á myndina af þeim.

Ólympíuhópur ÍSÍ er skipaður eftirfarandi keppendum: