Site icon Klefinn

Margrét Lára – Hvernig seturðu þér markmið?

Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Hún kom í Klefann og hægt er að hlusta á þáttinn með henni hér.

Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að skrifa niður markmiðið og endurskoða þau reglulega. Markmiðasetning hefur víðtæk áhrif á íþróttafólk, á jákvæðan hátt, þá er gott að skoða sig og þekkja sína styrkleika og veikleika.  

Þú getur hlustað á Apple hér.

Margrét Lára fer yfir muninn á mismunandi markmiðum eins og:

Niðurstöðumarkmið – eins og að vera Íslandsmeistari, komast í landsliðið – en það eru hlutir sem þú hefur ekki stjórn á, þú hefur ekki stjórn á andstæðingunum.

Frammistöðumarkmið – mikilvægustu markmiðin, markmið sem við höfum meiri stjórn á. t.d. hlaupa á x tíma, lækka forgjöfina mína um x. Það eru markmið sem við erum að vinna í alla daga, oft tengt einhverju sem þig langar að bæta, eins og t.d. móttaka.

Færnimarkmið – eru undir frammistöðumarkmiðunum, þar finnurðu hluti til að vinna í til að bæta frammistöðumarkmiðin.

„Hlutir geta farið í allar áttir, ef maður er samviskusamur og tekur þetta föstum tökum og gerir sitt besta þá getur maður alltaf verið sáttur við niðurstöðuna,“ segir Margrét Lára.

Mælum með að þú takir glósur, gefi þér tíma að skoða hvað þú þarft að vinna í til að ná þínum markmiðum og hefjist svo handa. Gangi þér vel.

Þátturinn er í boði AuðurÚtilífsLemonNutrilenk og Hafið fiskverslun.

Þú finnur okkur á instagram
@mlv9
@Klefinn.is
@Siljaulfars

Exit mobile version