Site icon Klefinn

Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun – Arnar Sölvi Íþróttanæringarfræðingur

KLEFINN x Arnar Sölvi Næringarfræðingur

Nýjasti viðmælandinn í „Klefinn með Silju Úlfars“ er Arnar Sölvi Arnmundsson íþróttanæringarfræðingur hjá Nutreleat. Arnar leggur mikið upp úr því hvernig íþróttafólk getur hámarkað árangur sinn í íþróttum með betri næringu, það er ekki nóg að æfa bara, það þarf að horfa á þetta frá fleirum hliðum eins og næringu, svefn og andlegri heilsu meðal annars.

Næring í íþróttum: Grunnatriðin

Arnar Sölvi útskýrir að næring er gríðarlega mikilvæg fyrir íþróttafólk og að grunnatriðin eru að þekkja sjálfan sig og sína íþrótt og bendir á það að næring hjá maraþon hlaupara og körfuboltamanni getur verið mjög ólík. Íþróttafólk þarf að borða í samræmi við íþróttina sína, þegar æfingaálagið eykst þarf að borða meira til að gefa líkamanum þá orku sem hann þarfnast.

Hvað þú borðar í dag hefur áhrif á hvað þú gerir á morgun,“ segir Arnar Sölvi, en hann bendir einnig á mikilvægi þess að borða rétt fyrir keppnir. „Grunnurinn í næringu þarf að vera til staðar áður en farið er í að breyta næringunni eftir þörfum vegna íþróttarinnar.“

Ungt íþróttafólk og næring

Arnar Sölvi tekur fram að ungt íþróttafólk þarf oft að vinna í að átta sig á orkuþörf sinni, þar sem orkuþörfin er ekki eins alla daga. „Að skilja eigin næringarþarfir er mikilvægt, sérstaklega ef þetta er fólk sem æfir og keppir mikið,“ segir hann.

Hann hvetur ungmenni til að skipuleggja máltíðir og nesti, þar sem tíminn er oft takmarkaður. Árangursrík næring er ekki bara um að borða mikið; það snýst einnig um að finna réttu staðina til að fylla á orkuna. „Oft þarf að undirbúa kvöldið áður,“ segir hann.

Fæðubótaefni: Hvað þarf í æðri íþróttum?

Arnar Sölvi talar um að fæðubótaefni geta verið gagnleg og fer aðeins yfir fæðubótaefni fyrir yngri og eldri en 18 ára. „Fólk þarf að vera meðvitað um hvað það er að taka inn og hvers vegna,“ segir hann.

Hann nefnir mikilvægi próteins, kolvetna og vökva eftir æfingar, þar sem þessi þrjú eru grundvallar þáttur í endurheimtunni. „Prótein er mikilvægt fyrir vöðvauppbyggingu, en við þurfum einnig að endurhlaða kolvetnunum sem við notum mikið á æfingum.“

p.s. Kóðinn „KLEFINN“ gefur 15% afslátt inn á Hreysti.is.

Næring í samræmi við markmið

Að lokum segir Arnar Sölvi að næring sé ekki skammgóð lausn. Það sé nauðsynlegt að máltíðir séu í takt við æfingaálag, sem skiptir máli fyrir frammistöðu í íþróttum. „Næring snýst um að hámarka afkastagetu; íþróttafólk þarf að finna hvað hentar þeim og hve mikið þeir þurfa að borða til að viðhalda góðri frammistöðu.

Næring í íþróttum er flókið en mikilvæg, þar sem rétt aðferð getur verið munurinn á milli þess að komast á pall eða enda í 7. sæti.

Þú getur hlustað á þáttinn við Arnar Sölva hér.

Þú færð 15% afslátt á Hreysti.is með kóðanum KLEFINN.
Til að nálgast Arnar Sölva þá finnurðu hann á Nutreleat.is

Exit mobile version