Site icon Klefinn

Erlingur Richardsson – handboltaþjálfari

Erlingur Richardsson íþróttafræðingur og handboltaþjálfari settist í Klefann hjá Silju Úlfars og ræddi handbolta þjálfaraferilinn og hvernig það er að fara í nýtt umhverfi og setja saman nýtt teymi og lið. Erlingur starfar núna hjá Austuríska liðinu Mödling þar sem verið sé að byggja upp nýtt lið „mitt hlutverk er að koma minni heimspeki inn í klúbbinn, hjálpa þjálfurum og kenna þeim og vera þeim til halds og trausts,“ segir hann. Þá ræddi Erlingur einnig þjálfun á börnum og unglingum, eru akademíur að virka ennþá?

Sérhæfing í íþróttum

Erlingur lítur á þjálfun ungs íþróttafólks sem mikilvægan þátt í uppbyggingu á framtíðar íþróttastarfssemi. Í gegnum tíðina hefur sérhæfing í íþróttum verið umdeild umræðuefni meðal þjálfara, foreldra og iðkenda. Erlingur Birgir Richardsson, íþróttafræðingur og þjálfari Austuríska handboltaliðsins Mödling, fjallar um mikilvægi að stunda fjölbreyttar íþróttir, sérstaklega hjá ungu íþróttafólki.

Sérhæfing felur í sér að einbeita sér að einni íþrótt eða grein snemma á ferlinum. Þó að slíkt geti leitt til hraðari þróunar á ákveðnum sviðum, hefur rannsóknir sýnt að það getur einnig aukið líkur á meiðslum og kulnun. Hann nefnir að meiðslatíðni sé oft hærri hjá þeim sem sérhæfa sig snemma, enda taka þeir þátt í einhæfðari hreyfingum.

Erlingur bendir á að börn sem stunda margar íþróttir á unga aldri sýni betri líðan og hafa minni áhyggjur. „Eftir því sem þær eru fleiri en tvær, þá líður börnunum betur, “ segir hann, en hann útskýrir það betur í þættinum.

Akademíur

Akademíur eru hugsaðar til að styðja við aukna hæfni ungs fólks í sinni íþrótt. Erlingur skýrði frá að akademían í Vestmannaeyjum hafi verið sett á laggirnar til að hjálpa unglingum að velja betri lífstíl, þar sem áhersla var lögð á að forðast áfengis- og vímuefnaneyslu. „Fyrsti hópurinn var mjög einbeittur og setti línuna,“ segir hann, og hefur sú uppbygging sýnt árangur í að hjálpa ungum fólki að vaxa.

Það er að koma í ljós, núna fyrir mánuði síðan var ráðstefna í Noregi þar sem var verið að fara yfir samanburð á krökkum 13-15 ára sem fóru í gegnum íþrótta akademíurnar, borið saman við þá sem fóru ekki. Niðurstöðurnar voru kannski sláandi fyrir okkur sem erum að vinna við akademíurnar. Námsárangurinn var slakari, meiri kvíði og pressa á meðan hinir voru afslappaðri og á endanum náðu hóparnir svipað langt í íþróttunum.“ Þó að akademíurnar hjálpi til við að þróa leikmenn, er mikilvægt að íhuga hvort of mikið álag og samkeppni geti valdið meiri kvíða og stressi.

Þá ræðir Erlendur hvort það sé hægt að efla íþróttakennsluna aðeins aftur, nýta hana betur varðandi líkamsbeitingu, jafnvægi, styrk, samhæfingu og fleira. Eins og Erlingur bendir á þarf að huga að líkamlegri og andlegri heilsu íþróttafólks. Við viljum skila iðkendum út í lífið án áhyggja og líkamsmeiðsla. „Ekki allir ætla að vera íþróttamenn, en við viljum að þau séu hreyfanleg og heilbrigð,“ segir hann.

Erlingur talar um rannsókn á tveimur hópum, annar hópurinn sérhæfir sig snemma, toppar snemma og er búinn snemma. Hinn hópurinn kemur svo og er lengur í íþróttinni. Í Belgíu þá breyttu þeir æfingunum þegar þeir föttuðu að leikmenn eins og Kevin De Bruyne hjá City var „late bloomer“, en hann fór ekki í gegnum yngri landsliðin og því eru Belgar að breyta vegferðinni og  skoða hvort þeir séu að missa af svona leikmönnum. Þá ræðir hann einnig hvað Bayern Munchen, Holland og Spánn eru að gera.

Sérhæfing í íþróttum er flókið málefni sem kallar á samráð milli þjálfara, foreldra og félaga. Með því að auka vitund um mikilvægi fjölbreytni og stuðla að því að börn velji margvísleg tækifæri í íþróttum, getur samfélagið stuðlað að heilsusamlegri og hamingjusamari framtíð fyrir ungt íþróttafólk.


2:00 – Mödling þjálfara verkefnið
19:40  – Akademían í Vestmannaeyjum
23:40 – Íþrótta akademíur – niðurstöður sláandi
25:20 – Leikfimikennsla
31:00 – Þjálfun erlendis
34:20 – Að finna góðan fyrirliða
44:30 – Saudi Arabía
49:15 – Sérhæfing ungs íþróttafólks – barnastjarna eða afreksmaður
1:02:00 – Rannsóknir, Belgía, og fleira.
1:05;40 – Ef Erling mætti ráða, hvernig myndi hann setja þetta upp
1:11:50 – Fjölskyldan

Þátturinn er í boði AuðurÚtilífsLemonNutrilenk og Hafið fiskverslun.

Exit mobile version