Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september. Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km.
Átta íþróttafólk er nú í Belgíu, öll keppa þau í götuhjólreiðum en fjögur þeirra keppa í tímatöku einnig.
Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambandsins sagði okkur frá mótinu og fór yfir undirbúning og keppnisfyrirkomulagið. Hann lýsti því hvernig það er að vera í fylgdarbílnum að elta keppendur ef þau þurfa á aðstoða að halda, hann sagði meðal annars „þú ert oft að keyra framhjá 200 manna pelatoni þar sem þú ert með hjólreiðafólk með centimetra bili á milli sín og bílsins á svona 40-70km hraða … ef það væri tré og ég þyrfti að velja að keyra á tréð eða hjólreiðamann, þá myndi ég keyra beint á tréð.“
Hafdís Sigurðardóttir Íslandsmeistari síðustu þryggja ára í götuhjólreiðum og tímatöku keppir í báðum greinunum. Hafdís ræddi undirbúninginn, næringuna á hjólinu og fór vel yfir fyrirkomulagið á keppnunum og hvernig er að hjóla í svona stórri keppni „við störtum frekar aftarlega og svo eru fylgdarbílarnir í sömu röð, bestu liðin eru með fylgdarbílana næst sér og svo koll af kolli, svo þegar þú ert x langt á eftir fremsta hóp þá eru hjólarar flaggaðir út koll af kolli, svo það er rosalega lítil prósenta sem klárar keppnina.“
Kristinn Jónsson keppir einnig í tímatöku og götuhjólreiðum hann talar um báðar greinarnar en er spenntari fyrir götuhjólreiða keppninni. Kristinn er er Íslandsmeistari í götuhjólreiðum og Ólympískum fjallahjólum og þegar spurður hvort það sé kostur að vera góður á fjallahjólum í götuhjólakeppni þá svarar hann „100%, að vera með snögg viðbrögð og gott jafnvægi á hjólinu, kunna á ýmsar aðstæður, eins og vera vel vakandi ef einhver fipast eða eitthvað kemur snögglega upp og þurfa að sveigja sér út fyrir umferða eyju eða skilti eða eitthvað svoleiðis.“
Bríet Kristý talaði um undirbúninginn en hún kom inn í keppnina með stuttum fyrirvara þar sem Ísland fékk auka sæti á EM. Bríet eignaðist barn fyrir 2 árum og er nú komin í Íslenska búninginn aftur hún sagði „consistency og skipuleg er lykillinn, ég var dugleg að koma mér í gang þótt ég hefði ekki mikinn tíma, ég byrjaði kannski bara á hálftíma 3x í viku.“ Þá bætir hún við „í raun og veru að njóta ferðalagsins að komast aftur í form, því það tekur tíma og tekur mikla þolinmæði.“ Þá hefur hún einnig verið að huga meira að næringu síðastliðið ár þar sem hún er með erlendan þjálfara „það er bara 100% þannig að langflestir hjólarar eru að „under fuela“ sig á æfingum, það er svo mikil orka sem þú þarft ef þú ætlar að æfa 15-20 tíma á viku.“
Silja Jóhannesdóttir fékk einnig stuttan fyrirvara og segir að undirbúningurinn hennar fyrir mótið feli meðal annars í sér hvar börnin verða á meðan hún er úti að keppa og maðurinn hennar er sjómaður. Silja keppir í tímatöku og götuhjólreiðum, „markmiðið fyrir tímatöku er að koma í gjörsamlega úrvinda í mark, búin að klára hvern einasta dropa … og stóra markmiðið í road race hjá öllum konum er að klára, en engin Íslensk kona hefur náð að klára svona stóra keppni.“
Davíð Jónsson er aðeins 19 ára og keppir í U23 ára flokki í Tímatöku og götuhjólreiðum, hann var að klára menntaskóla í Svíþjóð og þar einbeitti hann sér að hjólreiðunum. Þau eru búin að skoða brautina fyrir tímatöku þá sagði hann um brautina „það er svoldið mikið af beygjum, það er eins og þeir hafa ákveðið að hafa eins mikið af áhorfendum og hægt er og fóru í gegnum öll hverfin inni í bænum, þannig að það er fullt af 90 gróðu beygjum.“ Þegar hann var spurður hvort hann eða Kiddi bróðir hans væru betri þá svaraði hann mjög dipló „við getum orðað það að hann er kannski betri en ég, en ég ætla að segja að ég sé efnilegri.“
Hvet þig til að hlusta og fræðast meira um Evrópumeistaramótið í götuhjólum og þessa frábæru hjólara okkar Íslendinga.
Hvetjum ykkur til að hlusta og til að styðja við íþróttafólkið, en þú finnur þau hér:
Elite
Bríet Kristý Gunnarsdóttir
Hafdís Sigurðardóttir
Kristinn Jónsson
Silja Jóhannesdóttir
U23
Björgvin Haukur Bjarnason
Breki Gunnarsson
Daníel Freyr Steinarsson
Davíð Jónsson
Þátturinn er í boði Útilífs, Auður, Lemon, Hafið fiskverslun og Nutrilenk
Þú finnur okkur á instagram
@klefinn.is
@siljaulfars
@icelandcycling

