Site icon Klefinn

Daníel Ingi tekur stórt stökk til Svíþjóðar

Daníel Ingi flyst til Svíþjóðar þar sem hann mun æfa undir leiðsögn heimsklassa þjálfara, Yannick Tregaro sem þekkir það að ná árangri.

Daníel Ingi Egilsson langstökkvari hjá FH æfði frjálsar þegar hann var yngri, hætti og snéri svo aftur á brautina fyrir þremur árum, þá 21 árs gamall.  Á þessum 3 árum hefur hann tekið Íslandsmetið í þrístökki innanhúss og í sumar stórbætti hann Íslandsmetið í langstökki sem var í eigu Jóns Arnars Magnússonar frá 1994 og var 8.00m. Á Norðurlandamótinu í sumar stökk Daníel Ingi 8.21 og var aðeins 6 cm frá lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana. Þess má geta að besti árangur Daneís, 8.21 hefði tryggt honum 4. sætið á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Daníel hefur æft undir leiðsögn Hermans Þór Haraldssonar hjá FH, Daníel tilkynnti þetta á instagramminu sínu þar sem hann þakkar Hermanni fyrir samstarfið og ræðir nýtt upphaf með Yannick Tregaro

“Ég hlakka mikið til og er mjög spenntur fyrir nýju upphafi og næsta kafla í lífi mínu. Við stefnum á toppinn”

Hver er Yannick Tregaro?

Yannick er fæddur árið 1978, hann keppti í hástökki og náði meðal annars 10. sæti á Heimsmeistaramóti Unglinga 1996. Þjálfari hópsins sem hann æfði með lést mjög skyndilega og þá tók Yannick við hópnum aðeins 23 ára gamall. Í hópnum var meðal annars Christian Olsson sem varð einn besti þrístökkvari í heimi undir leiðsögn Yannick. Christian Olsson á gull frá Ólympíuleikunum, 3 gull frá Heimsmeistaramótum, og 3 gull frá Evrópumeistaramótum.

Þá þjálfaði Yannig einnig sænskar hástökkskonur, Kajsa Bergqvist á tvö gull frá Heimsmeistaramótum og Emma Green á silfur á EM og Bronz frá HM.

Daníel heldur út 6. október og við óskum Daníeli góðs gengis úti, þetta eru frábærar fréttir fyrir Íslenskt íþróttalíf!

Exit mobile version