Site icon Klefinn

Stjórnmálaflokkarnir í Klefanum að ræða framtíð íþrótta á Íslandi

Hlaðvarpið Klefinn er með fókus á íþróttir og því bauð Silja Úlfars öllum stjórnmálaflokkunum til að setjast hjá sér og fara aðeins yfir íþróttatengd málefni og ræða framtíð íþrótta á Íslandi. Hægt er að hlusta á þættina á Spotify og Youtube meðal annars.

Í fjárlögum ríkisins þá fellur íþróttir undir flokkinn „menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál“ heildarútgjöld í þennan lið nema 22 milljarða, sem skiptist í 20,3 milljarðar í menningu og listir og aðeins 1.5 milljarður í Íþróttir og æskulýðsmál. Þetta er stór skekkja og íþróttahreyfingin þarf að vera dugleg að minna á sig til að hægt sé að sjá sanngjarnari skiptun.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra settist niður með Silju og þar sagði hún: “…við höfum forgangsraðað aðeins vitlaust í gegnum tíðina. Þegar maður ber okkur saman við önnur lönd þá sé ég samt að við erum að verja meiri fjármunum í menningar, íþrótta og trúmál sem eru oft svona flokkað saman, heldur en önnur lönd af vergri landsframleiðslu, þegar við berum okkar saman við norðurlöndin td. en þegar maður skoðar svo skiptinguna á því þá er skiptingin okkar mikið verri. Þar koma íþróttirnar miklu verr út og við höfum ekki byggt upp nógu skýran stuðning við afreksfólk og við landsliðsfólkið okkar.” Áslaug Arna talar um þetta á mínútu 7:00.

Ásmundur Einar Daðason svokallaður „íþróttamálaráðherra“ fór yfir síðasta kjörtímabil, hvað hefur gerst, hvað er í vinnslu og hvað er frammundan. Hann talar um mikilvægi þess að auka fjárstuðning við afreksíþróttir á Íslandi, tryggja betri aðstöðu og bæta umhverfi íþróttafólks eins og að efla stuðning við landsliðin, styrkja íþróttasjóði og fleira. „Peningar er allt aflið þess vegna verður það þannig núna, algjörlega þegar við munum gera upp þetta kjörtímabil þá verður þetta eitthvert stærsta kjörtímabil í sögunni í fjárfestingum í íþróttum, bæði inn í svæðin við erum að koma mjög sterkt þar inn í stuðninginn þar, inn í mannvirkin og núna inn í afreksíþróttastarfið“ segir Ásmundur meðal annars í þættinum sem þú getur hlustað á hér.

Fimm atriði eru sérstaklega rædd í þáttunum

Fjárframlög til íþróttahreyfingarinnar
Sjá flokkarnir hvað það er mikil skekkja í fjármagni til íþrótta- og æskulýðsmála? Hvað er hægt að gera?
Styðja flokkarnir við það starf sem hefur verið unnið að?

Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi
Rætt er um börn úti á landi, af erlendum uppruna, með fatlanir og efnaminni fjölskyldur

Brottfall og stytting menntaskóla
Hver er þeirra skoðun á styttingu menntaskólans?

Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn
Ætla þau að styðja við frekari uppbyggingu á þessum verkefnum?

Veðmálastarfsemi á Íslandi
Hver er skoðun þeirra á þessu máli?
Ef opnað, hvað ber að huga að?

Anton Sveinn McKee fyrrum sundmaður sem er nú að hefja sinn pólitíska feril í Miðflokknum fer einnig yfir þessi mál og hans skoðun á erlendri veðmálastarfsemi “það ætti að leyfa þetta (erlenda veðmálastarfsemi), held það séu í kringum 45% af allri veðmálastarfsemi sem fer fram fyrir utan landsteinana. Þetta eru tapaðar skatttekjur, ég sé ekkert athugavert við það að veita fleirum starfsleyfi.” Anton Sveinn talar um þetta á mínútu 29:30.

Hanna Katrín Friðriksson alþingiskona Viðreisnar sagði þegar spurð um veðmálastarfsemi á Íslandi “við erum ekki flokkur boðs og banna yfir, við höfum sagt það þarf skynsemi í þetta og við höfum vísað í þessar tölur sem þú nefndir…Það er rétt að hér hafa stungið upp kollinum hér og þar allskonar veðmálastarfsemi þar sem ávinningurinn er ekki að renna til almannaheilla starfsemi og eru annars eðlis, eru líklegri til að ýta undir einhvers konar ofspilun og slíkt og auðvitað þurfa þeir hlutir að vera í lagi. Við þurfum að gæta þess að hlutir sem eru bannaðir að það þarf að fylgjast með hvernig þeirri starfsemi vindur fram. ”  Hanna Katrín ræðir um þetta á mínútu 40 í þættinum.

Þau sem komu voru: (og hvenær þættirnir koma út)

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir – Sjálfstæðisflokkurinn
Anton Sveinn McKee – Miðflokkurinn

Hanna Katrín Friðriksson – Viðreisn
Bjarki Hjörleifsson – Vinstri Græn
Hannes S. Jónsson – Samfylkingin
Theodór Ingi Ólafsson – Píratar
Ásmundur Einar Daðason – Framsókn
Arnar Páll Gunnlaugsson – Sósíalistinn

Exit mobile version