Site icon Klefinn

Snorri Steinn Guðjónsson – Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður

Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi. 

Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræðir ferilinn og deilir reynslu sinni af mótlæti, meðal annars að klikka á mikilvægu víti gegn Frökkum á Ólympíuleikunum þegar Ísland vann til silfurverðlauna. 

Þá fengum við spurningar frá ungu íþróttafólki, sem snúast um að ná árangri, hvað býr til gott lið sóknarlega og varnarlega, hvaða eiginleika er gott að hafa í sókn og vörn og fleira. 

Snorri hvetur alla til að nenna að leggja sig fram og ná sínum markmiðum.

Þátturinn er í boði Auður, Lemon, Nutrilenk og Hafið fiskverslun.

3:15 – Undirbúningur fyrir HM og vona að leikmenn meiðist ekki.
8:25 – Þjálfa Val – hvernig það hlutverk er öðruvísi
10:35 – Traust til leikmanna og að landsliðsmenn skilji sín hlutverk
13:20 – Mótlætið og fara í fílu, „ég er mikill fan af mótlætinu, ég held að það gerist ekkert gott nema með mótlætinu„.
14:20 – Hvaða áhrif að klúðra vítinu á ÓL hafði á Snorra
18:20 – Undirbúningurinn fyrir HM og æfingar fyrir HM
21:30 – Aron Pálmarsson fór aftur út til Veszprem
23:44 – Að velja lokahópinn fyrir HM
26:20 – ráð til yngri flokka sem komast ekki í hópinn
29:26 – Svekktur með hefbundinn undirbúning fyrir HM og ræðir hvernig mótið leggst í hann
32:50 – Að vera í sigurliði
34:25 – Hvernig býrðu til lið úr einstaklingum?
39:06 – Dagskrá landsliðsins úti
48:00 – Að upplifa gagnrýni
54:00 – Hvað er mikilvægt fyrir ungt íþróttafólk að huga að til að ná sem lengst?
57:10 – Að æfa fleiri íþróttagreinar, „því meira því betra„.
1:00:40 – ræddi um Val og liðin sem hann var í
1:08:15- „blautur bak við eyrum og hélt ég væri frábær þjálfari“.
1:16:20 – Hæfileikamótun og menntaskólaaldurinn
1:23:10 – Spurningar frá yngri kynslóðinni

Þú finnur okkur á instagram
@Klefinn.is
@Siljaulfars

Exit mobile version